Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði í kvöld fyrir Svíþjóð í 2. umferð milliriðla HM í handbolta. Tapið gerir það að verkum að örlögin eru úr höndum strákanna okkar og möguleikar á sæti í 8-liða úrslitum HM ansi litlir.
Nú sem áður fyrr sat þjóðin límd fyrir framan sjónvarpskjáinn og fylgdist stressuð með framgangi mála. Á samfélagsmiðlinum Twitter sköpuðust líflegar umræður yfir leiknum.
Hér fyrir neðan má sjá það helsta sem Íslendingar höfðu að segja eftir leik á Twitter:
Bara svo það sé á hreinu..allir sem fara í IKEA á morgun eru föðurlands svikarar....svo vantar ykkur ekkert í IKEA..#hmruv #hmruv23
— Photos of Iceland by Sveinn Nifl 🇮🇸 (@svennioddur) January 20, 2023
Það er enginn að panikka
— Helgi Seljan (@helgiseljan) January 20, 2023
Þetta er bara Palicka…
Það er ekki þjálfaranum að kenna að leikmenn klári ekki færin sín. Það er agalegt að fylgjast með þessu. Djöfulinn sjálfur.Eina.
— Guðjón Guðmundsson (@gaupinn) January 20, 2023
Donni kemur inn og skorar tvö góð mörk, á flottar mínútur. Af hverju er honum kippt útaf?
— Smári Jökull Jónsson (@smarijokull) January 20, 2023
Er hægt að biðja sérstaklega um að lyfjaprófa þennan sænska markmann eftir leik?
— Tómas Sjöberg (@tommisjoberg) January 20, 2023
Gleymist oft að við erum ekmi nema rúmlega 300.000 manns.
— Hrafnkell Freyr Ágústsson (@hrafnkellfreyr) January 20, 2023
Strákarnir gáfu allt sem þeir áttu en töpuðu fyrir betra liði og enn og aftur gerðu markverðir Svía okkur stóran grikk. Enginn Aron, nánast enginn Ómar voru skörð sem erfitt var að brúa. Vonin orðin veik að komast í 8-liða úrslit. Möguleg þjálfaraskipti framundan. DAGUR!
— Guðmundur Hilmarsson (@GummiHilmars) January 20, 2023
Þrot. Alltaf helvítis þrot. #HMRÚV ÞROT
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) January 20, 2023
Hafa dómararnir eitthvað á móti Gísla Þorgeiri? Fuuuuu #hmruv23 #hmruv
— Hulda Hrund (@hulda_hrund) January 20, 2023
Nu væri gaman að kveikja í ikeageitinni #hmruv
— María Björk (@baragrin) January 20, 2023
Við hefðum betur sett markið á Forsetabikarinn.
— Jón Júlíus Karlsson (@JonJKarlsson) January 20, 2023
Erfitt að kenna Gumma Gumm um blatant kjaftæði eins og klúðra dauðafærum aftur og aftur. Allt mótið. Einn á einn aftur og aftur. Einkunn er 3/10 því miður. Guðmundur þarf samt aðlaga sig að nútíma handbolta ef hann ætlar að vera á þessu leveli. Hann er ekki þar í dag.
— Rikki G (@RikkiGje) January 20, 2023
Markvarslan búin að vera mestu vonbrigði mótsins 😢 hélt við værum komnir töluvert lengra þar. #hmruv
— Henrik bjarnason (@Henrikbjarnason) January 20, 2023
ætla aldrei aftur í ikea eða hlusta á Abba aftur. #hmruv #hmruv23
— Andrea Ósk Ríkharðsdóttir Laxdal (@AndreaLaxdal) January 20, 2023
Setja allt púður í að fá Dag Sigurðsson til að taka við þessu frábæra liði sem við eigum. Við eigum að vera að gera mikið betur.
— Arnar Sveinn (@arnarsveinn) January 20, 2023
Heyrðu þetta var bara ógeðslega ömurlega glatað #hmruv
— Tanja Ísfjörð (@tanjaisfjord) January 20, 2023
Án tveggja bestu manna okkar í dag og fyrirliðalausir allt mótið var þetta ekkk séns. Áfram gakk. #handkastid #hmruv
— Valur Gunnarsson (@valurgunn) January 20, 2023