IMF (International Monetary Fund), Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, vinnur ekki aðeins með beinum hætti að efnahags- og gjaldeyrismálum, heldur beitir sjóðurinn sér líka - í umfangsmiklum mæli - fyrir ýmiss konar rannsóknum og greiningum á öðrum sviðum, sem hafa óbein en oft rík áhrif á alþjóðleg efnahagsmál.
IMF hefur varið miklum tíma og fjármunum til að rannsaka loftslagsvána, enda trúlega stærsta einstaka vandamálið og áskorunin, sem við mannkyninu blasir. Efnahagslega hliðin á þeim vanda er auðvitað hamfarahlýnunin með þeim loftslags- og veðrasviptingum - flóðum, þurrkum og fárviðrum - sem henni fylgja.
Nýlega gaf IMF út rannsóknarskýrslu um þetta efni með yfirskriftinni ”Nature’s Solution to Climate Change”; lausn náttúrunnar sjálfrar á loftslagsvánni. Meðal annars leiðir rannsóknin í ljós, að stórhveli taka til sín og geyma í búknum að meðaltali 33 tonn af CO2, sem jafngildir geymsluþoli um 1.500 fullvaxinna trjáa á kolefni.
Þegar dýrin deyja, sökkva þau niður á botn og taka kolvetnið með sér, þar sem það geymist í áratugi og leysist svo upp.
Eins leiðir rannsóknin í ljós, að næringarríkur úrgangur hvala er aðalfæða plöntusvifsins í hafinu, sem aftur framleiðir um helming alls súrefnis í lofthjúpnum.
Framlag plöntusvifsins í hafinu er jafngildi fjögurra Amazon-regnskóga, hvað varðar kolefnisbindingu og loftslagsvernd. Amazon skógarnir eru þó oft kallaðir lungu jarðarinnar.
IMF reiknar út verðgildi hvers stórhvelis í þessu ljósi, en ljóst er, að baráttan við loftslagsmengunina mun kosta mikla fjármuni. Sú staðreynd, svo og mikið verðgildi hvala fyrir náttúru, lífríki og upplifun ferða- og heimamanna, er tekið með í reikninginn.
Niðurstaða IMF er, að hvert stórhveli hafi verðgildi upp á a.m.k. 2 milljónir Bandaríkjadala eða um 250 milljónir ísl. króna.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, með Kristján Þór Júlíusson í broddi fylkingar, leyfði á síðasta ári dráp á 1.045 langreyðum og 1.085 hrefnum á árunum 2019-2023.
Skv. ofangreindu verðmati IMF hafa langreyðarnar einar verðgildi upp á 260 milljarða ísl. króna. Bæta má 50 milljörðum króna við vegna hrefnanna. Samtals 310 milljarðar króna.
Önnur hlið á þessum hvalveiðikvóta ríkisstjórnarinnar er sú staðreynd, að til að bæta það tjón á loftslagsgæðum, sem dráp á 1.045 langreyðum myndi valda, þyrfti að rækta og byggja upp skóg 1,6 milljón trjáa. Hversu mörg tré skyldu vera á Íslandi í dag?
Hér má einnig minna á, að Ísland er eina land veraldar, sem leyfir og stundar dráp á stórhveli, langreyði. Stundum er reynt, að réttlæta þetta dráp með meintu afráni langreyðanna. Þetta er þó út í hött, því langreyðar eru skíðishvalir, sem éta engan fisk.
Í ljósi þess, að langreyðaveiðar Hvals hf hafa á þessari öld verið reknar með tapi - svo að ekki sé talað um það heiftarlega dýraníð, sem veiðarnar byggja á – að mestu drápsaðferðir og -tækni frá 1950 - og þá stórfelldu skemmd á ímynd lands og þjóðar, sem veiðum fylgir - verður þessi leyfisveiting ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur að flokkast undir forkastanlega gjörð, sem er þeim, sem að henni standa - og þar með, því miður, Íslandi og Íslendingum öllum - til hneisu og vansæmdar.
Menn geta líka spurt sig, hvernig gat æðsta menntastofnun landsins, Háskóli Íslands, komizt að þeim niðurstöðum í hvalveiðimálum, sem fram koma í skýrslu Hagfræðistofnunar stofnunarinnar frá janúar 2018. Býr Háskóli Íslands virkilega ekki yfir meiri þekkingu – eru vísindi þar ekki á hærra stigi – eða réðu þar önnur sjónarmið eða öfl för?
Nefna má, að grunnupplýsingar um mikilvægi hvala fyrir lífríkið og lofthjúpinn hafa legið fyrir í um a.m.k. 5-10 ára skeið.
Það er við hæfi, að ljúka þessum pistli með tilvitnun í einn helzta snilling þjóðarinnar, Jóhannes S. Kjarval, sem elskaði hvali og sá og skildi mikilvægi þeirra fyrir lífríkið og jörðina löngu á undan öðrum:
„Hið stóra hjarta heimssálarinnar, hvalanna, sortjerar undir tónbylgjum, sem mundu glatast þessum hnetti ef við högum okkur verr en óvitar” (Hvalasagan (1956)).
Höfundur er stofnandi og formaður Jarðarvina.