Hvað ákvarðar hvar fita sest á líkamann?

Hvernig stendur á því að á mörgum konum skuli fitan helst setjast á rass og læri en aðrir fitna á maganum en halda grönnum lærum?

Staðsetning fitubirgða á líkamanum ræðst af ýmsum þáttum, en mestu skipta hormón, erfðir og líkamsvirkni. Fitusöfnum kvenna og karla er áberandi misjöfn og ástæða þess er kvenhormónið estrógen. Þannig hefst grein birt í Lifandi vísindi. Hringbraut og Lifandi vísindi hafa tekið upp samstarf sem felur í sér að reglulega birtast áhugaverðar greinar úr Lifandi vísindi á vef Hringbrautar. 

Estrógen eykur líkamsfitu og þar eð konur framleiða meira af því en karlar verður fituhlutfall þeirra hærra (25-31% hjá konum en 19-26% hjá körlum). Þetta kynhormón sér jafnframt til þess að fitan sest á rass, læri og mjaðmir og konur verða því oft nokkuð perulaga. Eftir breytingaskeiðið, þegar dregur úr hormónaframleiðslu, er eðlilegt að fitan færist ofar á konum. Mjaðmirnar verða þá grennri en mittismálið vex og konan tekur í vaxandi mæli á sig „eplaform“ karlmanna.

Allmörg gen hafa líka reynst hafa áhrif á hvar fitan tekur sér bólfestu. Það er ekki gerlegt að hafa áhrif á erfða- eða hormónaorsakir fitusöfnunar en að nokkru leyti er unnt að breyta eplaforminu í peruform með líkamshreyfingu. Þegar vöðvarnir starfa, framleiða þeir boðefnið interleukin-15, sem hefur reynst draga úr kviðfitu en hefur ekki áhrif á fitu á rassi og lærum.

Við minnum á Facebook-síðu Hringbrautar. Þar er að finna áhugaverðar fréttir og þá er ýmislegt spennandi framundan fyrir vini Hringbrautar. SMELLTU HÉR og vertu vinur okkar á Facebook.