Þegar sætindaþörfin og síðdegis-slenið svífur yfir er tilvalið að henda í þennan holla hristing.
Það sem þú þarft að eiga:
- Frosinn banana
- Möndlusmjör
- Döðlur eða Döðlusýróp
- Möndlumjólk
- Espresso skot
- Tahini
- Grænkál (Frosið eða ferskt)
- Sjávar-salt
Aðferð:
- Setjið eftirfarandi hráefni í blandara og bíðið spennt eftir því að sjá mosa-græna litinn myndast
- 1 lúka/bolli af grænkáli
- 1 frosinn banani,
- 200 ml möndlumjólk
- 1 tsk tahini
- 1 tsk möndlusmjör
- 1 tsk döðlusýróp (eða 1 fínt-saxaða döðlu)
- Örlítið sjávar-salt
- 1 espresso skot
Tips: Hentugt er að frysta saman í poka 1 lúku af grænkáli og 1 niðurskorinn banana þannig að það geymist lengur og fljótlegt sé að grípa í.
Það má vissulega sleppa grænkálinu í þessari uppskrift og þá verður þessi hristingur enn meira sælgæti.
Verði ykkur að góðu !
Hófý