Hrafn Jökulsson er látinn

Hrafn Jökuls­son, rit­höfundur og bar­áttu­maður fyrir betri heimi á ýmsum víg­stöðvum, er látinn eftir stutta og harða bar­áttu við ill­vígt krabba­mein í hálsi. Hrafn fæddist 1. nóvember 1965 og var því rétt tæp­lega 57 ára þegar hann lést.

Fréttablaðið greinir frá þessu.

Hrafn Jökulsson er látinn eftir harða baráttu við krabbamein í hálsi. Hrafn fæddist þann 1. nóvember 1965 og var því rétt tæplega 57 ára þegar hann lést. Æxlið, sem Hrafn kallaði Surtlu, uppgötvaðist seint í júní á þessu ári og Hrafn mætti henni æðrulaus og baráttuglaður í erfiðri geisla- og lyfjameðferð.

Hann háði baráttu sína upp á líf og dauða fyrir opnum tjöldum á Facebook með bjartsýnina og óbilandi lífsgleði að vopni til hinsta dags og hvatti á föstudaginn, í sinni síðustu færslu, vini sína til þess að hafa gleðina að leiðarljósi.

Hægt er að lesa umfjöllun Fréttablaðsins í heild sinni hér.