Birgir Helgason og Sigrún Guðmundsdóttir eru orðin að rokkstjörnum á samfélagsmiðlum en þau gefa fuglum að éta á hverjum einasta degi. Birgir kallar á smáfuglana með bílflauti og hvetur alla til að gæta að smáfuglunum.
Fréttablaðið tók viðtal við Birgi um þennan nýjan raunveruleika þeirra hjóna.
„Ég var bara úti í búð að kaupa brauð,“ segir Birgir Helgason léttur í bragði þegar Fréttablaðið nær af honum tali. Hann er duglegur að birta myndir af því í Facebook-hópnum Fuglafóðrun þegar hann gefur hinum ýmsu fuglum að éta skammt frá heimili sínu í Hveragerði.
„Eins og til dæmis í dag, þegar hefur rignt í gær og alla nótt, þá varla borgar sig að standa í því að gefa. En ég geri það nú samt því það er allt gaddfreðið þarna úti þar sem ég gef þeim,“ segir Birgir sem hefur ásamt eiginkonu sinni, Sigrúnu Guðmundsdóttur, gefið á hverjum einasta degi undanfarin ár.
„Ég hef gert þetta í svona sex eða sjö ár og þetta byrjar í desember og stendur alveg fram í mars, þó að það fari auðvitað eftir snjóalögum,“ segir Birgir.
Hann segir þetta hafa verið afar mikilvægt þennan sérlega harða vetur. „Undanfarnar fimm, sex vikur hafa verið snjóalög yfir öllu og ég er auðvitað austur í Hveragerði og það er hérna heilmikið óbyggt landsvæði þegar maður kemur niður Kambana, á vinstri hönd áður en maður kemur inn af hringtorginu. Þar er stórt svæði þar sem ég hef getað gefið þeim.“
Birgir hefur gefið fuglunum á sama stað öll þessi ár á hverjum einasta degi. „Og ég byrjaði fyrir nokkrum árum síðan að flauta tvisvar, svona bíb-bíb, þegar ég var að koma inn á stæðið og þá bara kom allur mökkurinn.“
Bíllinn bilaði hjá Birgi á dögunum og þá gat hann ekki flautað. „Ég fór fótgangandi og lenti þá í vandræðum með það hvað ég ætti að gera til að láta þá vita, þannig að ég prófaði bara að berja í botninn á þessari tíu lítra fötu sem ég fer með alltaf og heyrðu, það bara fylltist loftið af fuglum.“
Birgir segir að á venjulegum degi komi þrestir, snjótittlingar og starar. „Þeir koma á hverjum degi. Svo þar fyrir utan fæ ég gæsir, auðnutittlinga, krumma og dúfur, þannig að ég er með sjö tegundir af fuglum en ekki allt saman í einu, gæsirnar komu hérna um daginn og voru í tvær vikur en svo hef ég ekkert séð þær meira.“
Þá hefur krumminn verið duglegur að heimsækja Birgi og Sigrúnu. „En nú er hann að ná sér í kærustu og má ekkert vera að því að borða. Maður sér munstur í þessu öllu saman eftir öll þessi ár.“
Birgir hefur verið duglegur að deila myndum af fuglunum inni á Facebook-hópnum Fuglafóðrun. Þær hafa slegið í gegn en það er eiginkona hans Sigrún sem útbýr fóðrið. „Það er gaman að geta deilt þessu og fólk er að deila upplýsingum um hvaða korn á að kaupa og svona, og þegar maður gerir þetta á hverjum degi eins og ég getur verið smá kostnaður við þetta og maður þarf að velja réttu verðin.“
Hægt er að lesa viðtal Fréttablaðsins í heild sinni hér.