Þáttur um magaminnkunaraðgerðir á Hringbraut í kvöld:
Grundfirðingurinn Hjalti Allan Sverrisson man ekki eftir bernsku sinni öðruvísi en svo að honum hafi verið strítt út af því hvað hann var feitur. Hann segist hafa liðið vítiskvalir í æsku sakir þessa – og á endanum gekk hann inn á kontór skólastjóra síns og bað um að vera færður niður um bekk; hann gæti ekki lengur þolað einelti bekkjarsystkina sinna.
Hjalti Allan segir sögu sína í þættinum Allt annað líf á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld – og ugglaust má ætla að áhorfendur fái sting í hjartað þegar þeir hlýða á frásögn hans í samtali við Sigmund Erni úti í fjallabænum Jelenia Góra í suðvesturhluta Póllands, en þar gekkst hann undir magaminnkunaraðgerð fyrir nokkrum misserum, löngu orðinn úrkula vonar um að hann gæti grennt sig óstuddur, búinn að reyna hvern kúrinn af öðrum fram á miðjan aldur, án sýnilegs árangurs.
Svo hann lét slag standa, ætlaði í fyrstu að láta minnka magann heima á Íslandi, en þegar hann frétti af sambærilegri þjónustu í Póllandi sannfærðist hann um að þar væri fagfólkið að finna sem hann treysti til verksins. Á einu ári eftir aðgerðina léttist hann svo um 60 kíló, fór úr 160 kílóum niður í 100 – og sem bílstjóri hjá eigin ferðaþjónustufyrirtæki á Snæfellsnesi, sem leggur áherslu á jöklaferðir, sá hann loksins á mælaborðið í bílnum.
Hann býst við því að missa enn fleiri kíló ef hann stendur sig í mataræðinu næstu árin, en aðgerðin ein og sér skilar ekki árangri nema menn temji sér minni matarskammta og betra fæðuval en á offituárunum. Og það ætlar hann sér, fullyrðir hann skellibrosandi, loksins á þeim stað í lífinu að vakna grannur á morgnana.
Í þáttunum sem hefja göngu sína í kvöld er fylgst með magaminnkunaraðgerðum á kunnri klíník í fyrrnefndum fjallabæ og rætt við fleiri Íslendinga sem hafa þegið þjónustu af þessu tagi, svo sem sjúkraliðann Kristínu Sigmundsdóttur frá Hólmavík sem er tugum kílóa léttari eftir sína aðgerð – og hleypir nú upp og niður stigana á heilsugæslunni í sjávarþorpinu við Steingrímsfjörð, léttari í skrefi en nokkru sinni, að hún man eftir.
Og hún er ekki sú eina í bænum sem hefur farið í svona aðgerð, þó nokkur hópur Hólmvíkinga hefur gert slíkt hið sama og sér ekki eftir því. Og raunar er svo komið að í kringum 20 Íslendingar fara utan til Póllands þessara erinda í hverjum mánuði, slíkar eru vinsældir þessara aðgerða orðnar.
Þættirnir eru tveir og byrjar sá fyrri klukkan 20:00 í kvöld. Seinni þátturinn fer í loftið eftir rétta viku.