Himneskir hollusturéttir margrétar leifs í nestistöskuna í sumar

Á fallegum stað í hjarta Vesturbæjarins, í reisulegu og stílhreinu einbýlishúsi býr Margrét Leifsdóttir arkitekt og heilsumarkþjálfi. Sjöfn heimsækir Margréti í eldhúsið þar sem hjarta heimilisins slær. Margréti er einkum annt um heilsuna, gefandi og góð samskipti og hefur lagt sitt af mörkum við hjálpa öðrum til að laða það besta fram.  Meðal annars með námskeiðum sem hún hefur haldið ásamt öðrum og þar spilar mataræðið stórt hlutverk. Margrét býr til nokkra vel valda hollusturétti sem smellpassa í nestistöskuna fyrir ferðalög sumarsins og gefa okkur góða orku og gleðja bragðlaukana til muna.

Þátturinn Fasteignir og heimili er á dagskrá öll mánudagskvöld kl. 20:30 og kl. 22.30 á Hringbraut - og jafnan ferskur, fjölbreyttur og með persónulegum blæ.