Helga dís í áfalli: mikilvæg skilaboð til foreldra - kviknaði í bílnum og hurðar læstust: „barnið mitt hefði dáið í bílnum“

Síðustu helgi kviknaði skyndilega í bíl foreldra Helgu Dísar þar sem hann stóð kyrrstæður fyrir utan heimili þeirra. Bíllinn sem er af gerðinni Nissan Qashqai er frá árinu 2015 og hafði hann verið í notkun aðeins fimmtán mínútum fyrir brunann.

„Við höfum ekki fengið niðurstöðu um af hverju það kviknaði í en hann er algjörlega ónýtur. Ný dottinn úr ábyrgð þannig að umboðið gerði ekkert fyrir foreldra mína,“ segir Helga Dís í samtali við Hringbraut.

„Barnið mitt hefði dáið í bílnum\"

Helga Dís og foreldrar hennar hafa augljóslega verið í áfalli síðan bíllinn brann en engin viðvörunarljós höfðu gefið til kynna að eitthvað væri að bílnum.

„Ég hef séð mæður játa að þær skilji börnin sín eftir ein í bíl ef þau sofna, hvort sem það er í stutta stund eða ekki. Við höldum flestar að ekkert geti gerst og sumar telja öruggara að vera með barnið úti í bíl en úti í vagni. Bíllinn var kyrrstæður fyrir utan heimili þeirra þegar hann byrjaði að fyllast af reyk. Reykurinn var svartur og svo þykkur að ekki var hægt að komast að bílnum og framrúðan byrjaði að springa. Það kviknaði í bílnum svo hann bráðnaði að innan og kom risa gat fyrir neðan stýrið.“ Sagði Helga.

\"\"

Það sem Helga velti hvað mest fyrir sér eftir á var hvað hefði gerst ef foreldrar hennar hefðu verið á ferðinni með barnabörnin með sér.

„Þá hefðu þau ekki náð að bjarga þeim út. Það sem var verst var að hurðirnar í aftursætunum læstust og þar sem rafmagnið eyðilagðist þá var ekki hægt að aflæsa þær, eins með skottið. Ef mamma og pabbi hefðu verið á ferðinni með barnabörnin í aftursætinu þá hefðu þau ekki náð að bjarga þeim út. Barnið mitt hefði dáið í bílnum, hann er bara tveggja ára og getur ekki losað sig sjálfur. Þetta gerðist svo hratt og þessi bíll er nýlegur dísel bíll sem hafði aldrei verið með neitt vesen.“

Helgu segist bera skylda að vara aðra samborgara sína við þessu hræðilega slysi.

„Sérstaklega öðrum mæðrum. Farið varlega og ég bið ykkur um að skilja börnin ykkar aldrei ein eftir í bíl. Slys gera ekki boð á undan sér.“

\"\"

\"\"