Forréttur töfraður fram á örskammri stundu
Í þættinum Matur og Heimili í kvöld bregður Sjöfn Þórðar sér í eldhúsið og framreiðir forrétt á örskammri stundu. „Stundum er ráð að leyfa einfaldleikanum að ráða för og velja hráefni í rétti sem taka skamma stund að framreiða en eru engu að síður ljómandi góðir og gleðja bæði auga og munn,“segir Sjöfn sem finnst fátt skemmtilegra en að framreiða ólíkar kræsingar fyrir gesti sína, meira segja sælkera réttina sem hún fær í Bónus og létta matargerðina til muna.
Í eldhúsinu hjá Sjöfn Þórðar í þættinum Matur og Heimili á Hringbraut í kvöld klukkan 19.00 og aftur klukkan 21.00
Gæðin, ferskleikinn og öðruvísi matargerð á Samúelsson
Í þættinum Matur og Heimili í kvöld heimsækir Sjöfn Þórðar veitingastaðinn Samúelsson í nýju mathöllinni á Selfossi sem áður hýsti Mjólkurbú Flóamanna. Þar hittir hún Árna Bergþór Hafdal Bjarnason veitingamann og eiganda staðarins.
Frönsk matargerð þarf ekki að vera flókin
Að kunna að máta matinn í maga er list sem allir ættu að kunna, það lærði Ingibjörg Ásta þegar hún bjó í Frakklandi. Ingibjörg Ásta Pétursdóttir áhugamanneskja um mat, ein af frumkvöðlunum bak við Hótel Flatey á Breiðafirði og matarbókarútgefandi hefur alla tíð haft áhuga á mat og menningu.
Sjöfn sviptir hulunni af nýja eldhúsinu sínu
Í þættinum Matur og Heimili í kvöld sviptir Sjöfn Þórðar þáttastjórnandi þáttarins hulunni af nýja drauma eldhúsinu sínu eftir gagngerar endurbætur. Sjöfn fékk Berglindi Berndsen innanhússarktitekt til að endurhanna og teikna fyrir sig nýtt drauma eldhús sem var að mestu leiti með upprunalegum innréttingum sem þó var búið að sprautulakka og flikka upp á en húsið er byggt árið 1972 og því komin tími á breytingar þar sem upprunalega innréttingin var búin að þjóna hlutverki sínu með sóma í áratugi.
Hér getur öll garðaútivist fjölskyldunnar farið fram
Í vor í þættinum Matur og Heimili fór Sjöfn Þórðar í garðaskoðun þar sem þrír ólíkir garðar voru komnir í vinnslu eftir hönnun Björns Jóhannssonar landslagsarkitekt hjá Urban Beat og framkvæmdin á verkinum í höndum Garðaþjónustunnar. Allir garðarnir þrír eru draumagarðar eigenda sinna og það má með sanni segja að enginn sé betur til þess fallinn að hanna draumagarðinn í samráði við eigendur enn einmitt Björn.
Guðdómlega ljúffengar smákökur með vanillukremi og mjúkri miðju
Hér er á ferðinni uppskrift af guðdómlega ljúffengum smákökum með vanillukremi og mjúkri miðju sem þið eigið eftir að elska. Þessi uppskrift er úr smiðju Maríu Gomez, lífsstíls- og matarbloggara með meiru en hún sá kökur eins og þessar á kaffihúsi sem urðu innblásturinn að þessari uppskrift.
Heimsreisu smakk fyrir bragðlaukana í Mathöll Höfða
Mathöll Höfða sem staðsett er við Bíldshöfða 9, hefur tekið stakkaskiptum en Sólveig Andersen eigandi Mathallarinnar og hönnuður stóð í stórræðum í sumar og stækkaði Mathöllina umtalsvert með góðri útkomu. Veitingastöðunum hefur fjölgað úr átta í tíu sem er kærkomið og það má með sanni segja að hægt sé að fara í heimreisusmakk og matarflóran blómstrar í höllinni. Sjöfn Þórðar heimsækir Sólveigu í Mathöllina og fær innsýn í stækkunina og breytinguna sem henni fylgdi.
Hvað verður um frauðplastkassanna?
Umhverfisvernd er eitt af stærstu verkefnum samtímans og Bónus leggur sitt af mörkum og sýna um leið samfélagslega ábyrgð í verki. Í daglegum rekstri huga stjórnendur Bónus að því hvað má betur gera í endurnýtingu og á tímum aukinnar vitundavakningar er vert að benda á það sem vel er gert.
Nú er Bónus til að mynda í tilrauna samstarfsverkefni við fyrirtækin Terra og Tempra um endurnýtingu á frauðplastkössum. Sjöfn Þórðar heimsækir Baldur Ólafsson markaðsstjóra Bónus og fræðist frekar um þetta áhugaverða tilraunaverkefni.
Náttúrulegar sápur úr hráefnum sem falla til
Náttúrulegar sápur sem bera heitið Baða Reykjavík er ávöxtur samstarfsverkefnis sem Bónus og Baða Reykjavík standa fyrir með það að leiðarljósi að framleiða umhverfisvænar og náttúrulegar gæða baðvörur á góðu verði sem innihalda hráefni sem fellur til í matvælaframreiðslu og í matvörubúðum og stuðla að samfélagslegri ábyrgð.
Piparkökusjeik með karamellum sem þú verður að prófa
Girnilegir drykkir bornir fram í háum og skemmtilegum glösum gleðja mannskapinn og nú er lag að nýta piparkökurnar ljúffengum sem komnar eru í matvöruverslanir á margbreytilegan hátt.
Ómótstæðilega ljúffeng Draugakaka
Hrekkjavakan er framundan og hér kemur skemmtileg útfærsla af draugaköku úr smiðju Berglindar Hreiðars köku- og matarbloggara með meiru sem heldur úti síðunni Gotterí og gersemar sem allir ættu að geta gert. Hér nýtir hún djölfatertubotn sem er silkimjúkur og áferðin ómótstæðileg og gerir kökuna syndsamlega góða.