Heimalagað snakk fyrir krakka

Á netsíðu Heilsuhússins er að finna margt fróðlegt til að mynda þessa uppskrift. Það er mikilvægt að koma hollustu í litla kroppa en það getur reynst snúið og stundum þarf að hugsa út fyrir boxið til að ná að koma t.d. bráðhollu grænkáli í blessuð börnin. 


Kál snakk með stökku „ostabragði”


2 pokar grænkál
2 bollar kasjúhnetur - látnar liggja í bleyti í a.m.k. 60 mín.
1/2 bolli chiafræ - má láta þau liggja í bleyti með kasjúhnetunum
1 stk rauð paprika
2 stk sítrónur kreistar
1/2 bolli næringarger (nutritional yeast)
2 msk Sonnentor turmeric
1 tsk sjávarsalt
svartur pipar eftir smekk.


Setjið allt hráefnið fyrir utan grænkálið í blandara. Skerið kálið í bita og hellið maukinu yfir. Blandið öllu vel saman við kálið, notið hendurnar. Dreifið á þrjár ofnplötur með smjörpappír og bakið í tvær klukkustundir á 110°C.