Nýlegar rannsóknir við Kyoto-Háskóla í Japan benda til að neysla fiskfitu ýti undir brennslu og dragi þannig úr fitusöfnun. Tilraunir á músum sýndu að sá hópur sem neytti fiskfitu þyngdist 5-10% minna og safnaði 15-25% minna af fitu en aðrir hópar.
Þetta kemur fram á vef háskólans. Ástæðan er í einföldu máli sögð sú að fiskfitan breyti ákveðnum fitufrumum úr geymslufrumum í brennslufrumur.
„Fyrri rannsóknir hafa sýnt margvísleg jákvæð áhrif af neyslu fiskfitu. Þar á meðal að dregið gæti úr fitusöfnun,“ segir Teruo Kawada, aðalhöfundur greinarinnar um rannsóknina.
„Því hefur lengi verið haldið fram að matur í Japan og við Miðjarðarhafið ýti undir langlífi. En skiptar skoðanir hafa verið uppi um hvers vegna. Nú höfum við enn betri innsýn í af hverju svo er.“