Guðmundur Karl Snæbjörnsson, sérfræðingur í heimilislækningum, hefur stefnt íslenska ríkinu fyrir bann þeirra á lyfinu Ivermectin gegn Covid.
Hann hefur átt í ágreiningi við stjórnsýslu hérlendis vegna notkunar lyfsins gegn Covid en það hefur náð til Lyfjastofnunar, landlæknisembættisins og heilbrigðisráðuneytisins, sem öll banna lyfið gegn Covid.
Fréttablaðið fjallar um þetta en Guðmundur skýrir sjálfur frá þessu í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Þar segist hann þegar vera byrjaður að ávísa sjúklingum Ivermectin gegn Covid.
„Mikil og góð verkun lyfsins liggur fyrir, jafnvel er talið að það skili yfir 91 prósent árangri gegn Covid utan sjúkrahúsa. Öllum má vera ljóst hve mikil jákvæð áhrif lyfið hefði haft til að draga úr álagi af sjúkrahúsinnlögnum, gjörgæslu og fækkun dauðsfalla,“ segir Guðmundur í greininni.
Ágreiningur sem nær aftur til 2020
Guðmundur Karl segir ágreining sinn við ríkisstofnanir hérlendis ná aftur til ársins 2020, þegar heimsfaraldur Covid hófst. Þá hafi beiðni um samþykki um notkun lyfsins gegn Covid farið í gegnum Lyfjastofnun og Landlæknisembættið og endað með stjórnsýslukæru til heilbrigðisráðuneytisins.
„Niðurstaða ráðuneytisins fól í sér viðurkenningu á lögbrotum Lyfjastofnunar. Engu að síður samþykkti ráðuneytið að notkun lyfsins gegn Covid skyldi bönnuð,“ segir Guðmundur Karl.
Hann segir að í málflutningi ríkislögmanns komi fram að þar sem Lyfjastofnun hefi veitt lyfinu markaðsleyfi hefði Guðmundur Karl enga lögvarða hagsmuni lengur af málinu.
„Af því verður ekki annað ályktað en að undirritaður geti með fullum rétti ávísað lyfinu gegn Covid,“ segir Guðmundur og vill að öllum læknum verði þegar í stað tilkynnt um þessa afstöðu ríkislögmanns svo læknar geti hafið ávísanir Ivermectin gegn Covid.
Hann segist hafa hafið lyfjaávísanir Ivermectin gegn Covid og að hann hafi tilkynnt það til heilbrigðisráðuneytisins með erindi til heilbrigðisráðherra.
Segir ríkið taka fram fyrir hendur lækna
Guðmundur Karl segir fyrrgreint dómsmál snúast um það hvort löglegt og réttmætt sé að ríkið taki fyrir hendur lækna, „með því að brjóta á rétti þeirra og sniðganga faglegt hlutverk þeirra.“
„Slíkt fer í bága við ákvæði lyfjalaga og samræmist ekki þeim valdmörkum sem ríkinu eru sett að lögum og stjórnarskrá. Ríkinu er hvergi ætlað að vera „yfirlæknir“ allra lækna hvað meðferð varðar,“ segir Guðmundur Karl.
„Handhöfum ríkisvalds getur ekki leyfst að sniðganga lög um sjúklinga og vanvirða rétt mana til að velja meðferðarmöguleika sem þeim hugnast sér til bættrar heilsu og lengri lífdaga,“ segir hann.
Í grein á Vísindavefnum sem skrifuð er af Jóni Magnúsi Jóhannessyni, deildarlækni á Landspítalanum, og Magnúsi Karli Magnússyni, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, segja þeir að rannsóknir á Ivermectin sem bent hafa á mögulega gagnsemi gegn Covid hafi ekki geta sýnt fram á skýrt orsakasamhengi.
Jón Magnús og Magnús Karl segja flestar rannsóknir á virkni lyfsins við Covid hafi hvorki verið ritrýndar né birtar formlega.