Guðdómlega ljúffengt súkkulaði og bananapæ

Hér er á ferðinni guðdómlega ljúffengt súkkulaði og bananapæ sem lætur engan ósnortinn. Það bráðnar hreinlega í munni og þú nýtur hvers munnbita. Heiðurinn af þessu sælkerapæi er Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir sælkeri með meiru sem heldur úti bloggsíðunni Döðlur & smjör og Instagraminu @doðlurogsmjor

Þetta pæ er alveg ofur einfalt og tilvalið í bústaðnum, sem eftirréttur eða bara til að gera eithvað gott að því manni langar það. Því flækjustigin þurfa oft ekki að vera mörg til að gera eitthvað ótrúlega gott. Guðrún Ýr eignaðist dóttur 1.júlí og hefur verið koma sér aftur af stað í bakstursgírinn eftir þó nokkrar lægð á meðgöngu og fyrsta mánuðinn á eftir eins og hún segir sjálf. Einfaldur bakstur hefur því hentaði henni einstaklega vel.

„Við höfum bara verið að njóta í botn og kúra sem mest og gott að fara sér hægt,“ segir Guðrún Ýr og mælir eindregið með því að þið prófið þess og njótið.

M&H Súkkulaði og bananapæ GY 2.jpeg

Það verður enginn svikinn af þessu ljúffenga súkkulaði og bananapæi./Ljósmyndir Guðrún Ýr.

Súkkulaði & bananapæ

Fyrir 4

200 g oreo (hægt að kaupa mulið oreo í sumum verslunum)
2 msk. púðursykur
100 g smjör, bráðið
örlítið salt

Myljið kexið í matvinnsluvél eða setjið það í plastpoka og berjið með einhverju þungu eins og kökukefli. Blandið vel saman mylsnunni við púðursykurinn, bráðna smjörið og saltið. Takið 20 cm form eða ílát af þínu vali og þrýstið mylsnunni í botninn og upp með hliðum.

Gott er að kæla botninn í stuttu stund, 10-15 mínútur til að leyfa botninum að þéttast.

Fylling

2 bananar
100 ml súkkulaðismjör (Nutella eða Nusica t.d.)
250 ml rjómi
Hnetur, til skrauts

Skerið niður banana í sneiðar. Velgið súkkulaðismjörið lítillega, svo auðveldara sé að smyrja úr því og þeytið rjómann.

Takið þá botninn úr kæli og dreifið bananasneiðunum yfir. Ofan á bananana dreifið þið úr súkkulaðismjörinu jafnt yfir. Í lokin er þeytti rjóminn tekinn og settur yfir súkkulaðið.

Gott er að rista hnetur og dreifa yfir eða rífa niður súkkulaði með rifjárni yfir – Bara það sem hugurinn girnist.