Guðdómlega ljúffeng Rolo ostakaka

Ostakökur eru einstaklega ljúffengar og léttar undir tönn. Berglind Hreiðars köku- og matarbloggari hjá Gotterí og gersemar er iðin að koma með nýjar seiðandi og ferskar hugmyndir af kökum sem töfra gestina upp úr skónum. Hér er komin ein guðdómlega ljúffeng ostakaka þar karamellukossarnir Rolo og Homeblest kexið spila aðalhlutverkið og gleðja bragðalaukana. „Ostakökur eru eitthvað sem ég fæ aldrei nóg af. Þær passa svo fullkomlega sem eftirréttur, hluti af veisluborði eða bara með sunnudagskaffinu,“ segir Berglind og er á því að þessi sé skotheld á veisluborðið. Hér er því á ferðinni einföld og ljúffeng vanillu ostakaka með Rolo súkkulaðibitum.

M&H Ostakaka-8-768x1152.jpg

Rolo ostakaka að hætti Berglindar Hreiðars

Botn

  • 1 pakki Homeblest kex
  • 60 g brætt smjör
  1. Finnið til um 22 cm breitt smelluform, setjið bökunarpappír í botninn og spreyið botn og hliðar með matarolíuspreyi.
  2. Brytjið kexið niður í minni hluta og tætið niður í duftkennt form í blandara eða matvinnsluvél.
  3. Setjið kexduftið í skál og hrærið bræddu smjörinu saman við.
  4. Hellið blöndunni næst í kökuformið, þjappið því niður í botninn og aðeins upp kantana, kælið á meðan fyllingin er útbúin.

Fylling og skreyting

  • 4 gelatínblöð
  • 50 ml sjóðandi vatn
  • 600 g rjómaostur við stofuhita
  • 150 g sykur
  • 120 g flórsykur
  • Fræ úr einni vanillustöng
  • 300 ml þeyttur rjómi
  • 4 rúllur af Rolo (4 x 41,6 g)
  1. Leggið gelatínblöðin í bleyti í kalt vatn í um 10 mínútur.
  2. Sjóðið þá 50 ml af vatni og bætið gelatínblöðunum saman við, einu í einu, hrærið í á milli og takið af hellunni og hellið í skál/ílát þegar gelatínið er uppleyst. Leyfið á ná stofuhita á meðan annað er undirbúið.
  3. Þeytið saman rjómaost, sykur, flórsykur og fræ úr vanillustöng þar til létt blanda myndast, skafið nokkrum sinnum niður á milli.
  4. Hellið gelatínblöndunni (við stofuhita) saman við í mjórri bunu og hrærið saman allan tímann.
  5. Næst má blanda þeytta rjómanum varlega saman við með sleif.
  6. Að lokum má skera Rolo niður í minni bita og blanda saman við ostakökublönduna, síðan hella í smelluformið og kæla í að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt.
  7. Fallegt er að skreyta kökuna með ferskum blómum eða öðru sem ykkur dettur í hug.

M&H Ostakaka-12-1024x683.jpg