Græni drykkurinn sem sló rækilega í gegn á árinu 2020

Völundur Snær Völundsson, sem er að jafnaði kallaður Völli, matreiðslumaður og frumkvöðull er með fyrirtækið Algarum Organic sem kom með nýjar lífrænar vörur á markaðinn í síðla sumars á síðasta ári. Þær hafa hlotið verðskuldaða athygli og hráefnið er unnið á hinum fallega stað, Breiðafirði. Í þættinum Matur og Heimili var Völli heimsóttur heim í eldhúsið þar sem hann upplýsti forsögu á þessum lífrænu vörum og töfraði fram himneskan hollan grænan drykk sem toppaður er með þaraduftinu frá Algarum Organic.

M&H _ Völundur Snær0168 (1).jpg

Völundur Snær Völundarson frumkvöðull og matreiðslumeistari nýtur sín best í eldhúsinu heima ef hann er ekki úti í náttúrunni.

Upphaflega vinna hófst fyrir fjórum árum

„Hann Símon Már vinur minn hjá Íslenskri bláskel og sjávargróðri var byrjaður að þurrka þara fyrir fólk sem vantaði hann til ýmissa nota. Hann færði mér tvo stóra kassa fyrir fjórum árum til að prufa mig áfram með. Þá byrjaði ég að skoða hann sem hráefni í matargerð en skipti fljótlega um gír eftir því sem ég las meira um hversu ofboðslega heilnæmur þarinn er. Þannig hófst þessi vinna og ákváðum við í upphafi að hafa vöruna lífræna og 100% endurvinnanlega.“

Fimmta bragðið er í raun Umami

Völli fór yfir eiginleika Umami saltsins og hvar þar liggur en mikil vinna liggur að baki þróunnar vinnunnar sem unnin hefur verið hjá Algarum Organic. „Umami er í raun fimmta bragðið, en tungan skynjar sætt, salt, súrt og beiskt síðan er umami fimmta bragðið sem var skilgreint 1908 og þá úr dashi soði sem inniheldur einmitt kelp eða þara. Umami er undirliggjandi bragð sem má í raun kalla bassann í bragðinu. Þessu bragði verður ekki náð með einhverjum samsetningum heldur liggur það í þangi og þara. Þess vegna þróuðum við blöndu af söltum sem inniheldur mismunandi tegundir af þara og gefur þetta einstaka undirliggjandi bragð.“

Þaraduftið og hylkinn eru 100% lífræn unnin úr íslenskum þara

En hvað er það sem gerir Þaraduftið og hylkinn svo eftirsóknarverð? „100% lífræn, vegan og í 100% endurvinnanlegum og niðubrjótanlegum umbúðum. Þari er í raun eina plöntu eða jurtategundin sem inniheldur joð sem er líkamanum lífsnauðsynlegt. Í vörunni er eingöngu íslenskur handtýndur 100% lífrænt vottaður þari en eitt stærsta yfirvofandi heilsufarsvandamál í heiminum í dag er joðskortur og í fyrsta skipti mælist joðskortur hér á landi. Fólk borðar almennt minna af fiski og joðskortur hefur áhrif á skjaldkirtilinn og hormónastarfssemina sem hefur margvísleg einkenni á borð við þreytu, slen, þyngdaraukningu og þunglyndi.“

Uppáhalds morgundrykkur Völla

Við fengum Völla til að svipta hulunni af hans uppáhalds morgundrykk og fengum við hann til deila uppskriftinni. Völli töfraði þennan himneska græna drykk í þættinum Matur og Heimili. „Ég laga mér yfirleitt djús fyrir 2-3 daga í einu en í honum er greip, sítróna, engifer og bláber. “ Svo er það auðvita drykkurinn góði sem Völlu gerði toppaður með þaradufti. Hægt er að sjá þáttinn hér: Matur & Heimili

M&H Græni drykkur Algarum 2.jpg

Algarum drykkur með dagskammti af joði

1 grape ávöxtur

1 sítróna

1 bolli saxað grænkál

1 gulrót

½ msk. saxað ferskt engifer

1/3 tsk. Algarum þaraduft

Öllu blandað saman í blandara með smá köldu vatni. Berið fram í glösum og njótið.