Góði hirðirinn opnar í hjarta miðborgarinnar

Góði hirðirinn, nytjamarkaður SORPU, opnar á fimmtudaginn verslun við Hverfisgötu 94 í miðborg Reykjavíkur til viðbótar við verslunina í Fellsmúla 28. Með versluninni eykur Góði hirðirinn þjónustu við íbúa og gesti í miðborginni. Í versluninni verður mikið úrval notaðra muna á borð við húsgögn, raftæki, bækur, vínylplötur, smávöru og margt fleira.

„Verslunin er um 300 fermetrar og vöruframboðið þverskurður af því sem hefur verið í boði hjá Góða hirðinum,“ segir Ruth Einarsdóttir, rekstrarstjóri Góða hirðisins. Hún segir eftirspurn eftir notaðri vöru hafa aukist mikið á undanförnum árum með aukinni umhverfisvitund. „Sérstaklega hjá ungu fólki en líka öðrum sem er umhugað um umhverfis- og loftslagsmál,“ segir Ruth.

M&H Ruth hjá Góða Hirðinum.jpg

Ruth Einarsdóttir, rekstrastjóri Góða hirðisins./Myndir Þráinn Kolbeinsson

Verslunin er uppspretta – pop-up verslun – sem sprettur upp á Hverfisgötu yfir jólin. Ef vel gengur er til skoðunar að verslunin verði áfram við Hverfisgötu 94.

Með viðskiptum við Góða hirðinn styðja viðskiptavinir við hringrásarhagkerfið og koma í veg fyrir losun gróðurhúsalofttegunda og draga úr sóun. Allar vörurnar í Góða hirðinum eru í leit að framhaldslífi á nýju heimili eftir að fyrri eigendur skiluðu þeim til Góða hirðisins gegnum endurvinnslustöðvar SORPU. Í Góða hirðinum er því hægt að gera jólagjafakaupin í góðri sátt við umhverfið og loftslagið.

Sama dag, 19. nóvember, opnar verslun Góða hirðisins við Fellsmúla 28 að nýju, en hún hefur verið lokuð undanfarið vegna samkomutakmarkana.