Góð ráð til fægja silfrið fyrir jólin

Það eru nokkrir hlutir sem vert að fríska upp fyrir jólahátíðina og byrja snemma á því fyrir aðventuna. Má þar nefna silfrið, það þarf að fægja silfrið reglulega til að það njóti sín og glansi. Það er talað um að það falli á silfrið og þá verður það svart. Það sem veldur því er að brennisteinn sem getur verið í andrúmsloftinu, í vatni og matvælum hvarfast við silfrið. Til að losna við þennan svertuna eða svörtu áferð þarf að fægja silfrið.

Til er sérstakt fægiefni fyrir silfur sem einnig má nota á messing og kopar. Þetta efni fæst í flestum matvöru- og byggingarvöruverslunum og er á hagkvæmu verði auk þess sem það rennur ekki út. Einnig er hægt að fá góða bómullarklúta í þessum verslunum sem endast vel og ekki er ætlast til þess að þeir séu þvegnir heldur notaðir aftur og aftur með fægiefninu í. Einnig er hægt að útbúa 100% umhverfisvænan fægilögur en það er ávallt gert í Hússtjórnarskólanum sem er framhaldsskóli sem kennir textíl og matreiðslu og hefur reynst vel gegnum árin.

100% um­hverf­i­s­vænn silfurfægilögur

  • 1 l heitt vatn (soðið vatn)
  • 4 msk. salt
  • 4 msk. mat­ar­sódi
  • 1 örk álp­app­ír (hyl­ur botn­inn á vask­in­um)

Heita soðna vatnið er sett í vaskinn og efn­um blandað sam­an við, hrært aðeins í. Silf­ur sett út í vatnið, látið bíða í nokkra stund. Svert­an af silfr­inu, svarta áferðin, fer af og yfir á álp­app­ír­inn. Silfrið er skolað og þerrað með mjúkum bóm­ull­ar­klút.

Silfurfægillögur

Ef notaður er silfurfægilögur eru þessi ráð um meðhöndlun og vinnslu góð.

  • Berið fægilöginn á silfurmuni með klút og pússið síðan vel með hreinum klút þar til munurinn glansar eins og nýr. Notið mjúkan klút.
  • Ef silfrið er mjög óhreint getur þurft að endurtaka þetta. Ef munurinn er munstraður getur verið gott að nota mjúkan bursta eins og tannbursta til að ná litnum/áferðinni úr munstrinu.
  • Mataráhöld úr silfri eru þvegin vel og burstuð í sápuvatni og svo hreinu vatni. Lykilatriði er að sjóða vatnið sem þvegið er upp úr, ekki nota hitaveituvatnið heita. Þurrkið vel. Silfurdipp er mjög auðvelt að nota. Þá er hlutunum dýpt ofan í löginn og hann svo skolaður, þveginn og þurrkaður á eftir.
  • Handsmíðað silfur og brennt er þó best að fægja frekar með klút og silfurfægilegi.
  • Best er að geyma silfur í umbúðum, hnífapör í kössum eða sérsniðnum pokum fyrir silfur, þannig að loft komist ekki að og setja síðan í plastpoka.
  • Til að þvo silfur er best að nota kalt vatn sem hefur verið hitað í potti eða tekatli. Ef hitaveituvatner notað er hætt við því að silfurfægingin hverfi af og þá er verkið unnið fyrir gýg.

Heimili - silfrið

Silfrið sem þarf að fægja.jpg

Aðsendar myndir.