Konudagur er fyrsti dagur fornnorræna mánaðarins góu, sem er sunnudagurinn í átjándu viku vetrar á milli 18. og 24. febrúar. Við höfum haldið uppá konudaginn í áratugi og er hann einn af þjóðlegum tyllidögum okkar. Sú hefð að menn gefi konum blóm í tilefni konudagsinns virðist hafa hafist um miðjan sjötta áratug síðustu aldar en þá tóku blómasalar að auglýsa konudagsblóm. Gaman er að geta þess að Þórður á Sæbóli í Kópavogi mun hafa verið upphafsmaður þess en fyrsta blaðaauglýsingin sem hefur fundist frá Félagi garðyrkjubænda og blómaverslana er frá árinu 1957.
Komdu konunum í lífinu þínu á óvart
Sunnudaginn 24. febrúar næstkomandi er konudagurinn og þá er tilefni til að gleðja konurnar í lífi okkar. Hægt er að gera það á marga vegu, bæði með fallegum gjöfum og upplifunum sem búa til góðar minningar. Fjöldi veitingastaða eru með girnileg tilboð í tilefni konudagsins og bjóða fram sælkeramáltíð í tilefni dagsins. Blómasalar eru í sínu fínasta pússi og töfra fram hina fegurstu blómvendi. Bakararnir leggja sig fram við að baka konudagskökuna sem bráðnar í munni og fjölmargar verslanir bjóða uppá fallegar hönnunarvörur, flíkur og hvaðeina sem hugurinn girnist í tilefni dagsins. Einnig er dásamleg tilfinning að geta komið konunni á óvart með spennandi upplifun, til dæmis þyrluferð, heimsókn í jarðböð, morgunverð í rúmið, ljúffengum dögurði eða óvissuferð út í náttúruna. Það eru margar leiðir færar til að gleðja.
Hér eru brot af hugmyndum að frumlegum og skemmtilegum gjöfum sem vert er að skoða í tilefni dagsins:
- Þyrluflug
- Ferð til Parísar í borg elskenda
- Blómvönd – segðu það með blómum
- Morgunverður og dekur í rúmið
- Dögurður á sunnudegi til sælu
- Bakkelsi og kaka ársins
- Út að borða á rómantískum stað
- Rómantísk stund í sveitinni, gisting á hóteli
- Rómantísk stund heima
- Gefa henni fallegt skart
- Gefa henni falllegan feld eða hanska
- Gefa henni fallega flík
- Leikhúsferð
- Tónleikar
- Heimsókn í jarðböð eða bjórböð
- Spa og nudd
- Bíóferð
Hvað sem menn velja til að gleðja konurnar í lífinu sínu er það fyrst og fremst kærleikurinn sem skiptir máli. „Líf án kærleika er eins og ávaxtatré sem hvorki ber blóm né aldin.“ (Kahil Gibran)