Gísli Hvanndal Jakobsson, 36 ára tveggja barna faðir, skrifar um stöðu barna með foreldra í neyslu í Fréttablaðið í dag.
„Á Íslandi eru margar fjölskyldur með sterka þrá um bjarta framtíð fyrir sig og börnin sín. Ég þekki til fólks með börn þar sem sambýlismaður konunnar á langa sögu um sölu á fíkniefnum. Eins eiga þau það bæði sameiginlegt að neyta fíkniefna og áfengis í kringum börnin,“ skrifar Gísli.
„Í svona aðstæðum ber hverri manneskju skylda til að tilkynna foreldra eða sambúðarfólk til barnaverndar og/eða lögreglu. Þarna er maður sem er búinn að vera valdur að mörgum dauðsföllum með sölu sinni á fíkniefnum og er með börn í kringum sig og neytir sjálfur fíkniefna með maka sínum í kringum börnin,“ heldur Gísli áfram.
Hann spyr: „Er þetta samfélag sem við viljum sjá?“
„Ég hef persónulega heyrt fólk segja að fíkniefnamarkaðurinn sé til staðar hvort sem ég taki þátt í honum eða ekki þannig að ég get alveg eins tekið þátt í honum og grætt smá peninga fyrir mig og mína. Fólk tekur ábyrgð á sjálfu sér en ég ekki á þeim. Svona „rök“ eru ekkert nema siðblinda.“
„Hugsaðu þér að vera sjálf/ur dópsali og missa þitt eigið barn úr of stórum skammti af þínu eigin dópi sem þú selur. Ástæðan fyrir því að ég vildi skrifa aðeins um þetta er sú að ég þekki til fólks sem hefur látist vegna ofneyslu fíkniefna. Ég þekki líka til fólks sem hefur tekið sitt eigið líf í geðrofi á fíkniefnum og eða þróað með sér svo mikið þunglyndi og dregið sig frá samfélaginu að það hefur tekið sitt eigið líf.“
Hann segist hafa fjölskyldur sundrast og séð persónulega eyðileggingarmátt fíkniefna.
„Ég hef séð frá unga aldri þessa þróun versna og nú er svo komið að fólk hér á Íslandi hugsar sig tvisvar um hvort það ætti að fara út á lífið um helgar, hvort sem það er í miðbæ Reykjavíkur eða annars staðar vegna ótta um að verða fyrir ofbeldi í sínum fjölmörgu myndum.
Ef við viljum sjá og fá bjarta, góða og örugga framtíð fyrir börnin okkar þá verðum við að standa saman sem samfélag og vernda börnin okkar,“ skrifar Gísli.
„Ég trúi því að allir geti breyst ef þeir raunverulega vilja og það er í okkar valdi að leiðbeina ungu kynslóðinni í rétta átt að góðu lífi án eiturlyfja sem eyðileggja allt sem okkur er kært.
Sjálfsmorðstíðni hefur aukist verulega, glæpir af öllum toga, alvarlegar líkamsárásir, þróun margra gengja og stríða þeirra á milli og einnig höfum við séð grimmileg morð og aftökur sem þekktist ekki hér áður fyrr.“
Hann spyr aftur: „Er þetta það sem við viljum fyrir börnin okkar?“
„Ég trúi því að allir geti breytt sínu lífi og tekið aðra stefnu og gengið burt frá fíkniefnaheiminum sem gefur manni bara sársauka og sorg. Það er augljóst mál að samstarf þarf að ríkja meðal stjórnmálamanna og bæjarfélaga á öllum stigum þjóðfélagsins til að snúa þessari þróun við. Ef raunveruleg breyting á að eiga sér stað verða stjórnmálamenn að taka á þessari slæmu þróun.Við erum öll Barnavernd og við erum öll ein stór fjölskylda ef við viljum vera það og getum gert Ísland að því landi sem börnin okkar eiga skilið,“ skrifar Gísli að lokum.