Ritstjóri Heimildarinnar, Jón Trausti Reynisson, skrifaði í dag langa grein um fjölmiðlamanninn Frosta Logason þar sem hann tekur upp hanskann fyrir grínistann Stefán Ingvar Vigfússon. Líkt Hringbraut fjallaði um sagði Frosti Stefán vera hökulausan maðk eftir að Stefán gerði lítið úr nýju hlaðvarpsþáttunum hans Frosta á netinu.
Jón Trausti blandaði sér í deilurnar í dag. Hann segir að með því nota orðið maðkur um Stéfan sé Frosti að „afmennska“ hann en slíkt er undanfari þjóðarmorða.
„Það eitt og sér að líkja andstæðingi sínum við ógeðfellt dýr er þekkt einkenni í undanfara þjóðarmorða,“ skrifar Jón Trausti og rifjar upp að Hitler kallaði gyðinga maðka. Hann segir Stefán vera „kjaftfóran grínasta“ en fer ekki jafn fögrum orðum um Frosta.
Frosti ákvað að svara Jóni fullum hálsi á Facebook í dag.
„Kaldhæðnislegt, er fyrsta orðið sem kemur í huga mér þegar ég les nýjasta pistil hins frábæra blaðamanns Jóns Trausta Reynissonar, Þegar maður verður maðkur. Þar kemur hann með alveg eiturskarpa greiningu á því hvernig svar mitt við endurteknu netníði hafi ekkert með það að gera að bera hönd yfir höfuð sér, heldur sé eingöngu einhverskonar misnotkun á valdi mínu til að afmennska greyið grínistann sem vildi einungis fá að stunda netníð í friði.
Hinn umræddi góði grínisti hafði nefnilega bara skrifað um mig óteljandi færslur á samfélagsmiðlum þar sem hann veittist að persónu minni og mannorði áður en ég leyfði mér að svara honum í fyrsta skipti núna fyrr í þessari viku,“ skrifar Frosti.
„Samkvæmt Jóni Trausta gerðist ég svo ósmekklegur að sækja þar í smiðju Adolfs nokkurs Þýskalandskanzlara sem notaði þekktar aðferðir til að grafa undan tilverurétti fólks með því að uppnefna það maðka í ræðum og riti. Ekki nóg með það heldur minna aðferðir mínar líka á undanfara þjóðarmorðanna í Rúanda og ofsóknanna gegn Róhingjum í Myanmar. Geri aðrir betur,“ bætir hann við.
„Jón Trausti hefur eðlilega miklar áhyggjur af þessari vegferð minni en stressar sig ekki jafnmikið á afmennskunni sem átti sér stað í hina áttina áður en ég tók til varna. Það hafði jú áður verið gefið út skotveiðileyfi á mig þar sem ég er einn þeirra sem hef að undanförnu mátt sæta því hlutskipti að vera andlag einhliða frásagnar fyrrverandi maka í sérstökum hlaðvarpsþætti sem gerir út á slíkar frásagnir. Slík hlaðvörp hafi notið mikilla vinsælda í íslensku samfélagi síðastliðin misseri og þykja mikið þjóðþrifaverk.“
Frosti segist ekkert hafa tjáð sig um þær ásakanir sem voru bornar á hann.
„Í þeim hlaðvarpsþætti að öðru leyti en að biðjast afsökunar á tölvupóstum sem ég skrifaði í kjölfar sambandsslita fyrir rúmum tíu árum síðan. Ég hef ekki áhuga á að munnhöggvast við fyrrverandi kærustu á opinberum vettvangi og hef frekar farið þá leið að biðjast afsökunnar á mínum hlut og leita sátta í gegnum fagaðila. Þeim sáttaumleitunum hefur reyndar öllum verið svarað með skætingi enda algjör óþarfi að láta góða opinbera smánunarherferð fara til spillis. Mér hefur hingað til nægt að vita til þess að þeir sem þekkja málið vita að frásögn fyrrverandi kærustu minnar var ekki nema að litlum hluta rétt. En það er önnur saga.“
„Það sem síðan er kannski kaldhæðnislegast í þessu öllu er að Jón Trausti Reynisson fer sjálfur fyrir fjölmiðli sem veitir þeirri manneskju skjól sem farið hefur fremst í flokki opinberra smánunarherferða, í hlaðvarpi þar sem þess er kyrfilega gætt að sjónarmið þeirra sem um er fjallað fá aldrei að koma fram,“ skrifar Frosti og á þar við um þættina hennar Eddu Falak.
„Að lokum vona ég auðvitað að mér verði fyrirgefið að fylgja ekki alltaf hjörðinni en ég ætla ekki hér að fara biðjast afsökunnar á því að hafa staðið upp gegn ofbeldi netníðinga,“ skrifar Frosti að lokum.