Frosti Logason sem heldur úti Harmageddon þáttunum á vefsíðunni Brotkast.is ákvað að tækla fullyrðingar baráttukonunnar og fjölmiðlamannsins Eddu Falaks í þætti sínum í dag en þátturinn ber heitið „Eddu Falak afhjúpuð.“
Frosti og Edda hafa eldað grátt silfur saman lengi. Fyrrverandi kærasta Frosta, Edda Pétursdóttir, kom fram í viðtalivið hlaðvarpið Eigin konur, sem Edda Falak sér um, og bar Frosta þungum sökum.
Í dag ákvað Frosti að kasta „sprengjum“ til baka og saka Eddu um lygar. Í þættinum segist Frosti hafa heimildir fyrir því að Edda hafi beitt fólk andlegu ofbeldi og hún hafi gerst sek um lygar og þjófnað.
Hann segir tilefnið vera í lýsingu þáttarins en Edda hefur sagst ætla hækka siðferðisþröskuld samfélagsins en Frosti telur það ómögulegt þegar Edda kemur ekki sjálf hreint fram.
Frosti fer yfir ummæli Eddu í stærstu fjölmiðlum landsins en hann segir hana hafa ekki komið hreint fram um störf sín. Edda hefur þar sagst hafa unnið í verðbréfamiðlun hjá virtum banka, unnið í fjármáladeild hjá stóru fjármálafyrirtæki í Kaupmannahöfn. Hún hefur einnig sagst hafa unnið hjá lyfjarisanum Novo Nordisk.
„Ég er búinn hringja símtölin og ég er búinn að senda póstana og ég er búinn að vera stanslaust að skoða þetta í nokkrar vikur. Ég er búinn að vera í samskiptum við danska fjármálaeftirlitið,“ segir Frosti í þættinum.
Hann segir Eddu aldrei hafa unnið í stórum fjárfestingabanka eða neinum öðrum banka og heldur ekki hjá Novo Nordisk.
„Þetta er sprengja, þetta er algjörlega ótrúlegt því að hún er ekki að fullyrða þetta eftir þrjá bjóra á Kaffibarnum niðri í bæ. Hún er að segja þetta í stærstu fjölmiðlum landsins,“ segir Frosti
Sjá má myndbrotið hér að neðan.