Kötturinn Diego er líklega einn þekktasti köttur landsins enda hafa birst ófáar auglýsingar á samfélagsmiðlum þar sem lýst er eftir eigendum hans.
Staðreyndin er sú að Diego, sem er búsettur í Fossvoginum, er einstaklega mannblendinn og virðist þykja fátt skemmtilegra en að fara í Skeifuna þar sem hann blandar geði við viðskiptavini Hagkaups eða strætófarþega. Diego hefur oft ratað á síður sem tileinkaðar eru týndum dýrum og virðast margir telja að hann sakni eigenda sinna.
Á vef Dýrfinnu, þar sem lýst er eftir týndum dýrum, birtist umfjöllun um Diego á sunnudag þar sem greint er frá því að hann hafi fundist í Grafarvogi á dögunum. Var það kona í Vallarhúsum sem fékk Diego óvænt inn á heimili sitt í gegnum kattarlúgu.
„Á nokkrum mínútum frá því hún setti inn auglýsinguna var fólk búið að átta sig á því að þetta væri Diego, að hann væri langt frá heimili sínu og hafa samband við eigandann sem kom og sótti hann.“
Á vef Dýrfinnu kemur fram að eigandanum hafi fundist þetta mjög óþægilegt, eðlilega, því Diego hafði verið heima hjá sér í hádeginu – ekki löngu áður.
„Það var því alveg á hreinu að hann hafi ferðast með bíl. Þótt Diego sé mjög mannblendinn þá fer hann ekki upp í ókunnuga bíla og því mjög ólíkt honum ef hann hefur húkkað sér far. Þetta tilfelli endaði þó sem betur fer vel. En því miður er ekki allir kettir jafn auðþekkjanlegir og frægir og Diego.“
Dýrfinna ítrekar fyrir fólki að fylgjast með köttunum í hverfunum og setja inn auglýsingu ef það kannast ekki við kisu.
„Inni á heimasíðu Dýrfinnu má líka finna lista af sjálfboðaliðum sem eiga örmerkjaskanna sem geta komið og lesið af kisunni, það er í flestum tilfellum öruggara en að færa kisu úr sínu umhverfi ef hún er ekki týnd, eða eiga á hættu að missa hana út í glænýju umhverfi. Hjálpum týndum dýrum að komast heim - fylgjumst með kisunum í hverfinu.“