Erla Bolladóttir verður í viðtali í Þjóðbraut í kvöld. Erla var, sem kunnugt er, dæmd í þriggja ára fangelsi vegna Guðmunda- og Geirfinnsmálsins. Erla berst fyrir endurupptöku málsins.
Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra sagði um máæið á árinu 1988:
„Ég segi það fyrir mig persónulega að mér urðu mikil vonbrigði að Hæstiréttur skyldi ekki séð sig geta haft lagaskilyrði til að taka Geirfinnsmálið upp á nýjan leik. Ég hef fyrir mitt leyti kynnt mér þetta mál rækilega í gegnum tíðina og tel að þar hafi mönnum orðið á í messu í stórkostlegum mæli á nánast öllum stigum málsins. Ég held að það hefði verið mjög sársaukafullt fyrir íslenska dómstólakerfið, þá hefði það verið gott og nauðsynlegt, hundahreinsun fyrir okkur ef nota má það óvirðulegt orð, að fara í gegnum það mál allt og með hvaða hætti það var unnið. Þeir sem hafa kynnt sér það mál rækilega geta ekki annað en sagt að þar var víða pottur brotinn.“ Davíð lauk ræðu sinni á þessum orðum: „Það var ekki aðeins eitt dómsmorð framið á allri þessari vegferð, þau voru mörg dómsmorðin sem framin voru á þessari vegferð allri og það er mjög erfitt fyrir okkur að búa við það.“
Auk þessa máls verða stjórnmálin á dagskrá Þjóðbrautar, sem verður á dagskrá klukkan 21:00 í kvöld.
-sme