Elskar að baka og hefur bakað frá því hún man eftir sér

Elenora Rós Georgesdóttir bakaranemi og jólastelpa verður hjá Sjöfn Þórðar í þættinum Matur & Heimili á mánudagskvöld:

Elenora Rós Georgesdóttir er aðeins 19 ára gömul og hefur þegar gefið út sína fyrstu bók sem ber heitið Bakað með Elenoru Rós sem hefur hlotið verðskuldaða athygli en Elenora Rós hefur mikla og einlæga ástríðu fyrir bakstri. Hún er bakaranemi og starfar hjá Bláa lóninu við bakstur. „Ég hef elskað að baka frá því að ég man eftir mér og hef fengið að blómstra á þessu sviði,“ segir Elenora Rós og er afar þakklát fyrir þær viðtökur sem hún hefur fengið. Þjóðin hefur tekið unga bakaranemanum ástfóstri og það er ekki skrýtið, einlægt og hlýlegt viðmót Elenoru Rós bræðir öll hjörtu.

Matur_og_Heimili_Jolalega bollakökur að hætti Elenoru Rós 30.nóv 2020.png

Jólalegar bollakökur

Sjöfn Þórðar heimsækir Elenoru Rós í eldhúsið á heimili hennar í Ytri – Njarðvík þar sem hún ætlar að baka í tilefni aðventunar, jólalegar bollakökur sem allir geta gert í þættinum Matur og Heimili. Einnig fá áhorfendur að sjá leynibakaríið hennar, eldhúsið þar sem töfrarnir gerast, sem foreldrar hennar settu upp fyrir hana í bílskúrnum en Elenora Rós er foreldrum sínum innilega þakklát fyrir allan þann stuðning sem þau hafa veitt henni til að aðstoða hana við að láta drauma hennar rætast.

Matur_og_Heimili_Elenora Rós 30.nóv 2020.png

Pínulítil jólastelpa í hjarta mínu

Aðspurð segist Elenora Rós vera mikið jólabarn og elskar allt umstangið sérstaklega baksturinn. „Ég elska fátt jafn mikið og jólin. Ég á reyndar afmæli á Þorláksmessu svo ég er ekta jólabarn. En burt séð frá því þá elska ég skreytingarnar, hefðirnar, baksturinn, snjóinn og allt sem jólunum fylgir. Kannski er það vegna þess að ég ólst upp við mikla jólastemningu en ég er ávallt pínulítil jólastelpa í hjarta mínu sem elskar jólabaksturinn og allt sem honum fylgir.“ Framundan lærdómsrík og gefandi heimsókn í eldhúsið til Elenoru Rós sem enginn verður svikinn af í þættinum Matur og Heimili á mánudagskvöld.

Þátturinn Matur og Heimili er sýndur alla mánudaga á Hringbraut klukkan 20.30 og aftur klukkan 22.30.