Alvöru sælkerar elska að njóta matar með íslensku smjöri sem bragð er af. En betra ef smjör er bragðbætt með sælkera kræsingum sem toppa máltíðina. Hér erum við komin með uppskrift af ekta wasabi smjöri sem enginn stenst. Í smjörið er notað ekta íslenskt wasabi sem ræktað er á Íslandi Austur á Héraði, í Fellabæ, af Nordic Wasabi. Hægt er að fræðast frekar um íslenska wasabi-ið á heimasíðu Nordic Wasabi
Alls ekki fyrir löngu var allt wasabi á Íslandi blanda af piparrót, sinnepi og matarlit. Nú er wasabi ræktað á Íslandi en alvöru wasabi kemur beint úr stilk wasabi plöntunnar og er ferskt grænmeti, ekkert er tekið í burtu og engu er bætt við.
Ekta wasabi smjör
350 g smjör (helst íslenskt)
1 msk. ólífuolía
1 msk. hungang
Safi úr hálfri límónu
Nýrifið ferskt Nordic Wasabi (gott að eiga eina rót í ísskápnum og hún dugar vel í nokkrar rétti)
¼ tsk. Kúmin
Salt & pipar eftir smekk
Smjörið þarf að vera mjúkt, best að geyma það við stofuhita í nokkra klukkutíma til að mýkja það. Smjör, ólífuolía, hungang og límónusafi sett í skál og blandað saman. Nordic Wasabi rifið á sér til gerðu rifjárni og sett út í blönduna eftir smekk ásamt ¼ teskeið af kúmin. Piprið með salt og pipar eftir smekk. Notist á sama hátt og kryddsmjör, er í raun gott með öllu. Ljúffengt með grilluðum steikum, fiski, ofan á nýbakað súrdeigsbrauð eða hvaðeina sem freistar bragðlaukana.
*Hægt er að kaupa Nordic Wasabi rót í versluninni Nordic Wasabi á Skólavörðustíg 40 í Reykjavík.