Edda Björg­vins skráði sig í bak­varða­sveit og flytur út á land

Leik­konan Edda Björg­vins­dóttir hefur á­kveðið að láta gott af sér leiða og flytja út á land, að minnsta kosti tíma­bundið.

Edda greinir frá því á Face­book að hún hafi skráð sig sem sjálf­boða­liða í bak­varðar­sveit fyrir hjúkrunar­heimilið Lund á Hellu.

Edda segir í færslunni að hún hafi í raun aldrei verið hraustari og mun hún dvelja á Stracta-hótelinu á Hellu næstu dagana, en þar býr hluti af fjöl­skyldu hennar.

„Ég nálgast engan. Jú einu sinni á dag hitti ég elsku göngu­garpinn dóttur mína og við þrömmum með tveggja metra milli­bili okkar dag­lega göngu­túr. Ég tók ekkert rusl­fæði með mér og er að kafna úr monti,“ segir Edda og bætir við að hún þurfi að vera í „loft­tæmdum plast­poka“ áður en hún má koma inn á hjúkrunar­heimilið til að vera með þeim við­kvæma hópi sem þar dvelur.

Af færslu Eddu að dæma verður ekki annað séð en að hún sé full til­hlökkunar.

„Jóga, göngur og hollt fæði ... ég SKAL halda þetta út!,“ segir hún. Þeir sem um­gangast Eddu reglu­lega gætu orðið varir við breytingar á henni þegar hún kemur heim. „Ég held að þegar ég mæti til Reykja­víkur eftir laaaaanga dvöl í vernduðu um­hverfi og hollustu - þá verði ég hrukku­laus gyðja með þykkt liðað hár niðr­í mitti og 50 kíló ... MEÐ líf­rænu snyrti­buddunni minni!!!“