Dýrðlegt kjúklingalasagna úr smiðju Maríu Gomez

Hér er á ferðinni dýrðlegt Mexíkó kjúklingalasagna sem er afar auðvelt að gera og tekur ekki nema 40 mín í allt frá byrjun til enda. Þessi uppskrift er úr smiðju María Gomez matar- og lífsstílsbloggara með meiru sem heldur úti síðunni paz.is

María lofar að þessi hitti í mark og er komin með lag á því að velja hráefni og krydd sem einfalda matargerðina fyrir rétt eins og þennan. „Hér nota ég til að mynda úrbeinaða kjúklingaleggi sem ég geri hakk úr með því að setja þá í matvinnsluvél og trúið mér það er mjög gott. Ykkur kann að finnst það hljóma skringilega en ég nota þessa aðferð mjög oft, eins og þegar ég geri sem dæmi kjúklingabollur,“segir María. Jafnframt notar María líka vefjur í staðinn fyrir lasagna plötur sem styttir eldunartímann til muna. „Ef þú elskar spæsí mat mæli ég með að hafa líka með Tabasco sósu með Habanero bragði en hún er sturlað góð.“segir María en hún er iðin að leika sér með spæsí brögð og töfra fram matarupplifun fyrir bragðlaukana.

M&H Kjúklingalasagna MG 2.jpeg

Dýrðlega ljúffengt kjúklingalasagna sem bragð er af./Ljósmyndir María Gomez.

Mexíkó kjúklingalasagna

650-700 g úrbeinuð læri (María notaði frá Rose Poultry)

500-520 g salsasósa (María notaði frá Mission en þá eru það 2x 260 gr krukkur)

½ dl rjómi

2 dl maís baunir

2 vefjur (María notaði frá Mission wraps)

Raspaður börkur af einu Lime

1 dós sýrður rjómi (ég notaði með graslauk þennan í grænu dollunum)

½ dl ólífuolía

salt

Rifinn mozzarella

Rifinn cheddar

Hvít sósa á milli

½ dl rjómi

200 g eða ein askja af Philadelphia rjómaosti Original

60 g parmesan

50 g rifinn cheddar

60 g rifinn mozzarella

½ tsk. timian

½ tsk. oreganó

Kryddblanda

½ tsk. cayenne

1 tsk. paprika

1 tsk. cumin (ekki kúmen eins og í kringlum)

1 tsk. timian

½ tsk. svartur pipar

1 tsk. hvítlauksduft (ath ekki hvítlaukssalt)

1 tsk. laukduft (onion powder)

½ tsk. chili powder

1 tsk. oregano

1 msk .púðursykur

salt

Getið líka notað annað krydd sem passar við Mexíkómat í staðinn fyrir kryddblönduna, en oft er mikið af þessum kryddum til í skápnum hjá manni nú þegar sem fer í þessa kryddblöndu.

  1. Byrjið á að gera kyddblönduna með því að hræra öllum innihaldsefnum sem fer í hana saman.
  2. Setjið næst úrbeinaða kjúklingaleggi í matvinnsluvél með hnífinn á og ýtið á pulse og maukið þar til er orðið að litlum bitum en ekki of lengi samt því þá verður kjúllinn seigur.
  3. Hitið ólífuolíu á pönnu og setjið kúklinginn út á og saltið vel yfir og hellið allri kryddblöndunni yfir líka (ykkur gæti fundist hún of mikið en hún er það ekki).
  4. Leyfið að malla þar til kjúklingurinn er orðin hvítur og hellið þá salsasósu, rjóma og limeberki út á. Passið að raspa bara græna lagið af berkinum, ekki ofan í hvíta. Kveikið nú á ofninum á 190 °C blástur eða 200 °C ekki blástur..
  5. Látið malla í 5-10 mínútur á pönnuni og gerið hvítu sósuna á meðan með því að hræra öllu sem er í henni saman í skál og leggja svo til hliðar
  6. Setjið næst maísbaunir út á pönnuna hrærið og slökkvið undir og byrjið að raða í eldfast mót.
  7. Fyrst er sett kjúklingasalsað, næst vefja, hvít sósa smurð á vefjuna, aftur kjúklingasalsa, vefja, hvít sósa og að lokum annað lag kjúklingasalsa. Sýður rjómi settur efst ofan á og rifnum mozzarella og cheddar stráð yfir allt og gott að setja smá paprikuduft yfir ostinn.
  8. Bakið í ofninum í 20 mín og berið fram með guacamole sem þið finnið uppskrift af hér og sýrðum rjóma.

Borið fram með ofurauðveldu guacamole, sem er gert meðan lasagnað er í ofni, og sýrðum rjóma er fullkomin þrenna.

M&H kjúklingalasagna MH 4.jpeg