Hvað er betra en dúnmjúkur nýbakaður kanilsnúður rjúkandi heitur beint úr ofninum? Rjúkandi hollur heitur kanilsnúður að hætti Maríu Gomez, sælkera- og heimilisbloggara er málið. Þó þeir séu í hollari kantinum þýðir það ekki að þeir séu eitthvað verri. Hér er notast við lífrænt ræktað hráefni í forgrunni.
„Snúðarnir eru léttir og loftkenndir og fylltir með dásamlegu lífrænt ræktuðu kókóshnetu- og möndlusmjöri, blandað saman við kanil,“ segir María sem er þekkt fyrir að luma á ýmsu góðgæti í sinni smiðju. „Snúðarnir eru síðan toppaðir með dásamlegu lífrænt ræktuðu tonkasmjöri sem minnir mest á hvítt Nutella, ef ég get líkt því við eitthvað,“ segir María og bætir jafnframt við að útkoman sé hreint út sagt ótrúlega góð og holl.
Hollir snúðar að hætti Maríu Gomez
400 g lífrænt ræktað hveiti helst
25 g pressuger
1 tsk. vanilludropar eða vanilluduft
125 ml volg haframjólk
1/2 dl olía
40 g Rapadura sykur frá Rapunzel
2 egg
1 tsk. salt
Fylling
250 g eða ein krukka Coconut Almond butter frá Rapunzel
60 g Rapadura sykur frá Rapunzel
2 msk. kanill
2 msk. valmúgafræ frá Rapunzel
Krem ofan á
1 krukka eða 250 g Mandel Tonka Creme frá Rapunzel
Snúðar
- Setjið hveiti og salt í hrærivélarskál.
- Setjið svo pressuger, volga mjólkina og sykurinn í aðra skál sem er minni og hrærið vel saman. Látið standa í 5 mínútur.
- Bætið vanillu, eggjum og olíu saman við gerið og hrærið allt vel saman.
- Hellið svo gerblöndunni út í hveitið og látið hnoðast vel saman, ef deigið er blautt bætið þá ögn við af hveiti, bara örlítið í einu smátt og smátt þar til deigið hringar sig um krókinn og klessist ekki á höndunum.
- Breiðið þá stykki yfir hrærivélarskálina og látið hefast í 1 klukkustund, best í gluggakistu yfir miðstöðvarofni.
Fylling
Takið möndlusmjörið, sykurinn og kanilinn og hrærið vel saman í skál. Geymið valmúgafræin til hliðar.
Samsetning
- Byrji á því að hita ofninn á 180 C° á blæstri.
- Fletjið svo deigið út í þykkan ferning á stærð við A4 blað kannski ögn stærra.
- Smyrjið næst fyllingunni á deigið og sáldrið 1,5 msk. af valmúgafræum yfir.
- Rúllið nú deiginu upp í pulsu og skerið snúða sem eru c.a 8-10 cm þykkir og raðið í gott mót með smá bili á milli. Það eiga að nást c.a 10-12 snúðar úr deiginu.
- Sáldrið restinni af valmúgafræunum yfir og stingið í ofninn í 20 mínútur.
- Takið svo úr ofninum og smyrjið allri krukkunni af tonka kreminu vel yfir allt saman og þekið snúðana vel með því.
Berist fram heitt og með ískaldri mjólk eða góðu kaffi eða heitu súkkulaði.
Góð ráð fyrir baksturinn
Best er að baka snúðana í góðu eldföstu móti og hafa ögn bil á milli þeirra þegar þeim er raðað í mótið því þeir hefast enn meir í ofni og blása út. Ég mæli með að bera snúðana fram sjóðheita og setja kremið strax á þá. Afgang má svo hita upp í örbylgju á 20-30 sekúndur og þá verða þeir sem nýjir. Pressuger er notað í snúðana en það er yfirleitt að finna í kæli verslana.
María Gomez matar- og heimilisbloggari með meiru.