Davíð birtir sláandi tölur: „Það þarf að bregðast við STRAX“

„Eitt veit ég það má ekki draga fæturna og það þarf að bregðast við STRAX því það að vera stefnu og markmiðslaus á þessum árum getur haft lífshættulegar afleiðingar í för með sér.“

Þetta segir Davíð Bergmann Davíðsson, starfsmaður Fjölsmiðjunnar, í aðsendri grein á vef Vísis sem vakið hefur talsverða athygli.

Í grein sinni segir Davíð að hvorki fleiri né færri en þrjú þúsund ungmenni á höfuðborgarsvæðinu, á aldrinum 18 til 24 ára, séu hvorki í skóla né vinnu skóla. Hann bendir á að á höfuðborgarsvæðinu séu rétt um 28 þúsund einstaklingar á þessum aldri og því væri forvitnilegt að vita hver talan er á landsvísu.

„En hvaða 3000 ungmenni skildu þetta vera og verða þau tilbúinn til að taka þátt í fjórðu iðnbyltingunni eða munu þau festast í bótakerfinu sem tryggingaþegar framtíðar. Bíður þeirra jafnvel að vera föst í fátæktar gildru til æviloka sem kemur til með að auka enn frekar á ójöfnuð í okkar samfélagi?“

Davíð veltir fleiri atriðum fyrir sér, til dæmis hvort þetta séu ungmenni sem glíma við skólaforðun frá því í grunnskóla eða hvort þetta séu nemarnir sem detta úr framhaldsskólum strax á haustin af ýmsum ástæðum. Eða hvort þetta séu ungmenni sem sitja við tölvuna nær allan daginn og drekka orkudrykki í lítravís, á sama tíma og þau glíma við kvíða og þunglyndi.

„Þetta þarf að rannsaka og á ekki að líðast í velferðarsamfélagi eins og okkar að nærri 12 % ungmenna á höfuðborgarsvæðinu séu iðjulaus fyrir utan það hvað á þetta eftir að kosta þjóðarbúið næstu árin og áratugina.“

Davíð segir að þrjú þúsund manns sé stór fjöldi og til að setja hann í samhengi nefnir hann að íbúar Egilsstaða eru 2.572. Þá var heildarfjöldi flóttamanna sem kom hingað til lands á síðasta ári 2000. Spyr hann hvað við ættum að gera til að bregðast við þessu.

„Hvað með að fjölga Fjölsmiðjum sem er bæði vinnu og skólaúrræði og styrkja þær sem fyrir eru enn frekar. Möguleikar til framþróunar og nýsköpunar eru endalausir þar og ef það er eitt sem þessi ungmenni þurfa, þá er það þjálfun áður en þau fara á almennan vinnumarkað því þar er ávalt krafist reynslu. Eitt veit ég það má ekki draga fæturna og það þarf að bregðast við STRAX því það að vera stefnu og markmiðslaus á þessum árum getur haft lífshættulegar afleiðingar í för með sér.“