Caroline og finnbogi þakklát

Fyrir liggur að aðgerð á frönsku sjúkrahúsi sem Caroline, eiginkona Finnboga Rúts Finnbogasonar íslensks námsmanns í París, gekk vel eftir að hún fékk í sig tvö vélbyssuskot. Allar líkur eru á að Caroline muni ná sér að fullu.

Hringbraut fékk myndina að ofan senda af þeim hjónum þegar það erfiðasta var yfirstaðið. Saga þeirra hefur vakið mikla athygli hérlendis, enda sterkasta tengingin milli Íslands og Parísar vegna voðaverkanna. Finnbogi Rútur segir að þau séu þakklát að ekki fór enn verr. Vinkona Caroline sem sat með henni á kaffihúsinu þegar kúlnahríð skall á þeim slapp einnig betur frá vélbyssukúlu í bakið en séð varð fyrir.

Hringbraut óskar parinu alls hins besta.