Bsrb fagnar tillögum átakshóps

BSRB þykir tillögur átakshóps stjórnvalda í húsnæðismálum vera vel unnar og gott innlegg í umræðuna. Félagið telur ástæðu til að fagna þeirri samstöðu sem náðst hefur um aðgerðir en að nú þurfi stjórnvöld að hafa hraðar hendur og fjármagna tillögurnar og tryggja að þær nái fram að ganga. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu BSRB.

„Það er mjög jákvætt að húsnæðismálin eru loksins komin á dagskrá og það er ekki síst verkalýðshreyfingunni að þakka. Afrakstur umfangsmiklar vinnu liggur nú fyrir og mikilvægt að unnið sé hratt að útfærslum tillagnanna því verkefnið skiptir fjölmarga gríðarlegu máli. Alltof stór hluti launa of margra fer nú í húsnæðiskostnað og BSRB leggur áherslu á unnið sé hratt og vel að lækkun hans. Að sama skapi þarf að auka framboð svo að allir eigi kost á því að búa í viðunandi húsnæði á viðráðanlegu verði,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.

Félagið telur mikilvægt að fylgt verði eftir tillögum um áframhaldandi uppbyggingu almennra íbúða og að ríkið auki fjárveitingar í stofnframlög á næstu árum, til dæmis til Bjargs íbúðafélags, sem stofnað var af ASÍ og BSRB. „Þá er einnig þörf á því að endurskoða sem fyrst tekjumörk leigjenda í almenna íbúðakerfinu og að lækka fjármagnskostnað þeirra félaga sem standa að uppbyggingu þar til að tryggja framgang kerfisins. Þá er jákvætt að átakshópurinn tekur undir áherslur BSRB um stuðning við önnur íbúðafélög sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni,“ segir í tilkynningunni.

BSRB telur einnig mikilvægt að byggt sé í samræmi við þörfina hverju sinni. Til þess þurfi að efla upplýsingaöflun svo hægt sé að sjá hversu margar og hvernig íbúðir eru í byggingu hverju sinni. „Út frá því megi áætla betur þörfina á næstu árum og koma í veg fyrir einsleita uppbyggingu dýrari íbúða. Eins og ítrekað hefur verið bent á undanfarið skiptir miklu að það húsnæði sem byggt er henti tekjulægri hópum á vinnumarkaði,“ segir einnig í tilkynningunni.

„Nú hafa fulltrúar stjórnvalda, sveitarfélaga og heildarsamtaka launafólks og atvinnurekenda sameinast um hvernig eigi að bregðast við uppsöfnuðum skorti á íbúðum sem leitt hefur til mikillar verðhækkunar á íbúða- og leigumarkaði og húsnæðisóöryggis. Það gefur okkur von um að húsnæðisþörf ólíkra hópa verði mætt. Það á að vera forgangsverkefni stjórnvalda að húsnæðiskostnaður lækki og að tryggt verði nægilegt framboð á húsnæði svo að fólk hafi raunverulegt val um hvort það eigi eða leigi húsnæði,“ segir Sonja.