Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, er ekki ánægður með hvernig fjölmiðlar tengja hann sífellt við bróðir sinn sem hann heldur fram í háði að sé í raun ekki skyldur sér.
„Í hvert sinn sem fjölmiðlar vitna í eða skrifa um Gústaf Níelsson er hann gjarnan kynntur til leiks sem bróðir minn. Held að það sé einsdæmi í fjölmiðlum að einstakir menn séu alltaf spyrtir við bróður sinn. Svo er Gústaf ekki einu sinni bróðir minn heldur fann pabbi hann á ruslahaugum í sígaunaþorpi á Ítalíu, eins og komið hefur áður fram. Hefur verið ágreiningur um sannleiksgildi þess en útlitið lýgur ekki,“ skrifar Brynjar.
„Gústaf varð strax sérkennilegt barn, sem var eðlilegt eftir að hafa búið í reiðileysi á ruslahaugum fyrstu árin. Ekki batnaði ástandið þegar mamma gat ekki fylgt honum fyrsta skóladaginn 1. september 1960 því hún var að fæða mig heima í Barmahlíðinni, ófríðasta barn sem fæðst hafði í langan tíma að sögn Gústa. Vandræðagangur á lífsleiðinni á sér alltaf einhverjar skýringar,“ bætir hann við.
Fjölmargir hlæja af sögu Brynjars í athugasemdum og leggur Jakob Bjarnar Gretarssson blaðamaður orð í belg: „Heyrðu, Brynjar minn. Þetta er nú heimatilbúinn vandi. Í hvert skipti sem einhver vill andmæla þér er hann mættur meira eins og húsbóndahollur hundur frekar en frjáls og óbundinn Gypsy King.“
„Nú, hann er nú alltaf að skamma mig í hvert sinn sem við tölum saman. Segir mig og aðrar Sjálfstæðismenn aumingja sem láti alltaf undan vinstri mönnum,“ svara Brynjar og segir Jakob það vera alveg rétt hjá honum.