Bötlers sælkerborgarinn sem sprengir allan skalann

Jóhann Gunnar Arnarson bryti, lífskúnster og matgæðingur, betur þekktur sem Jói Bötler og eiginkona hans Kristín Ólafsdóttur, sem ávallt er kölluð Kiddý, vígðu nýju útihúsgögnin sín frá JAX handverk á pallinum með því að slá upp grillveislu og grilla sælkerahamborgara - smash borgara af bestu gerð sem er í miklu uppáhaldi hjá þeim hjónum í þættinum Matur og heimili á dögunum. Þáttinn má sjá hér: Matur og Heimili með Sjöfn Þórðar

M&H Jói Bötler grillar.jpg

Þegar kemur að því að dekka pallinn fyrir sumarið er Jói með á hreinu hvað er ómissandi að hafa á pallinum. „Blóm, gott grill og auðvitað JAX húsgögn, svo kemur búbblan líka sterk inn. Að endingu eru það góðir vinir, en þeir gera alla palla flotta,“segir Jói og nýtur þess í botn að taka á móti gestum á pallinum. Kiddý er iðin við að fegra pallinn með fallegum blómapottum og fylgihlutum sem gleðja augað.

M&H Bötlerinn með grilveislu - Bötler borgarinn.jpg

Góður grillmatur gerir svo mikið fyrir sálina

Jói og Kiddý grilla frekar mikið og jafnvel að vetri til líka. „Við grillum frekar mikið og jafnvel að vetri til líka. Það er voða gaman að grilla á veturna í góðu veðri,maður þarf bara að klæða sig eftir aðstæðum. Góður grillmatur gerir eitthvað svo mikið fyrir sálina.“ Jói segir að það fari eftir skapinu hvað honum finnst skemmtilegast að grilla að hverju sinni og hvað honum langar í. „Við grillum sennilega mest lambakjöt og kjúkling. Þá byrjum við oft á því að grilla pylsur, undir því yfirskini að þær séu fyrir börnin, það er flottur og góður forréttur á grillið. Eins er mjög gaman að grilla risarækjur í sama tilgangi. Svo eru hamborgarar alltaf klassískir á grillið. Ætli mér finnist samt ekki skemmtilegast að grilla lamba prime, það er svo rosalega gott líka. Í fyrra eignaðist ég svo draumagrillið, þegar Kiddý mín og stelpurnar mínar og fjölskyldur gáfu mér Kamado grill í afmælisgjöf. Þetta er einfaldlega lang besta grill sem ég hef átt, það er bara þannig.“

Tvö töfratrix lykilatriðið

Hvað eru helstu töfratrixin þegar hamborgari er grillaður? „Það eru tvö trix sem eru lykilatriði áður en þú byrjar, gott kjöt og góð kol. Þegar ég grilla hamborgara, vil ég helst hafa góðan hita á grillinu og grilla borgarann í u.þb.b. 3-4 mínútur á hlið. Það fer þó auðvitað eftir þykkt borgarans. Ég krydda alltaf eftirá, því ég vil ekki að saltið dragi vökvann úr kjötinu á meðan ég er að grilla. Já og alls ekki þrýsta ofan á borgarann með steikarspaðanum ALDREI, það pressar bara safann úr borgaranum. Svo er lykilatriði að hvíla kjötið aðeins á fati, áður en borgarinn er settur saman. Alveg nákvæmlega eins og maður gerir með góða steik.“ Aðalatriðið þegar steikja á hamborgara er að kaupa gott kjöt. „Ég vil helst hafa að minnsta kosti 20% fituinnihald í kjötinu. Það bindur kjötið betur saman og gerir borgarann líka miklu bragðmeiri og bragðbetri.“

Kartöflur eða grasker að einhverju tagi með

Þegar kemur að því að velja meðlæti með grilluðum sælkerahamborgara hvað finnst þér best? „Stundum við ég bara hafa þetta klassíska og enga stæla, svo koma tímar þar sem mig langar að gera eitthvað skemmtilegt. Ég vil samt helst alltaf hafa einhvers konar salat með, það er svolítið mikið sumar í því. Sveppir og laukur nánast ómissandi, þó ég bregði nú stundum útaf þeim vana. Loks þarf að hafa með kartöflur eða grasker í einhverri útgáfu.“

Hér ljóstrar Jói upp uppskriftinni af sínum uppáhalds sælkerahamborgara sem hann grillaði í þættinum Matur og Heimili ásamt meðlætinu. „Ef borgarinn er rétt steiktur verður hann mjög safaríkur og bragðgóður og því í raun algjör óþarfi að setja á hann mikla dressingu. Í þessu tilfelli notaði ég smá trufflukrem og svo bara beikonsultuna, það þarf ekkert meira.“

Jóhann bötler við grill (3).jpg

Bötlers-borgarinn

Fyrir 4

4 stk. Smash hamborgara 140 g frá Ferskum kjötvörum (fást í Bónus)

4 stk. kartöfluhamborgarabrauð eða hamborgarabrauð með sesamfræjum frá Bónus

trufflukrem (fæst í Hagkaup)

fallegt salatblað frá Lambhaga (fæst í Bónus

grillaða eplasneið (honey crunch, fæst í Bónus)

beikonsultu

andalifur eða andalifrarkæfu

að endingu raspa svarta trufflu yfir herlegheitin

Beikonsulta að hætti Bötlersins

400 g beikonkurl

1 meðalstór laukur, saxaður

4 stk. shallotlaukar, saxaðir

2 stk. hvítlauksgeirar, saxaðir

100 g púðursykur

200 g. hlynsíróp

80 g. eplaedik

1 tsk. chili duft

nokkrar niðursoðnar fíkjur eða döðlur (ef það er gert er gott að minnka aðeins sírópið á móti)

Byrjið á því að steikja beikonið á rúmlega miðlungshita, þar til það er orðið gyllt og stökkt og færið það yfir á eldhúspappír. Ef það er mikil fita eftir á pönnunni er gott að skilja eftir u.þ.b. eina matskeið. Lækkið aðeins hitann undir pönnunni og setjið svo lauk og shallotlauk á pönnuna. Leyfið lauknum að karamelíserast á pönnunni og hrærið oft í, tekur 10-15 mínútur. Bætið við hvítlauknum, púðursykrinum, hlynsírópinu, eplaedikinu og chili duftinu út í og þar næst beikoninu. Gott að það fari aðeins að sjóða í blöndunni og lækkið svo hitann. Sjóðið vökvann töluvert niður, þar til hann er orðinn þykkur og sultukenndur, í 7 til 10 mínútur. Beikonsultuna er hægt að setja í krukkur og nota við hin ýmsu tækifæri, en gott að bíða þar til sultan hefur kólnað. Gott að bera fram með ostum og kexi, og svo er þetta auðvitað fullkomið með hamborgunum.

Volgt graskerssalat

Grasker skorið í teninga og steikt á pönnu við frekar lágan hita í u.þ.b. 10 mínútur upp úr Olio Nitti ólífuuolíu. Passið að steikja það ekki of lengi, það er best að hafa smá bit í graskerinu. Bæta 2 söxuðum hvítlauksgeirum við og salta og pipra eftir smekk. Láta kólna aðeins í skál í 10 mínútur eða svo. Blandið saman spínati eða spínatkáli og graskerinu. Setjið í skál eða á disk, og setjið skorin jarðarber, ristaðar furuhnetur og fetaost yfir. Að endingu salta og pipra og hella góðum slurk af Olio Nitti yfir. Þetta má líka gera með sætar kartöflur eða jafnvel bara venjulegar. Mjög gott að setja steikt beikon eða steikta parmaskinku í þetta salat, ef maður er ekki með beikonsultuna og jafnvel saxaðar döðlur eða fíkjur.

Verið ykkur að góðu.