Bónus með nýjar sótthreinsistöðvar

Bónus hefur nú tekið í gagnið nýjar sótthreinsistöðvar sem nota útfjólubláa geisla til að sótthreinsa innkaupakerrur og handkörfur. Tækin eru í verslunum Bónus í Smáratorgi, Skeifunni og Korputorgi og er von á öðru tæki í Kauptúni í næstu viku.

,,Sóttvarnir hafa verið stór hluti af okkar starfsemi síðasta árið enda öryggi okkar viðskiptavina og starfsmanna ávallt í fyrirrúmi,“ segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus.

Fyrirtækið pantaði þessi tæki fyrir nokkru síðan en vegna eftirspurnar bárust þau ekki fyrr en nú. Guðmundur segir tækið afar einfalt í notkun.

,,Innkaupakerra er keyrð inn í tækið og beðið er á meðan útfjólubláir geislar sótthreinsa. Mikilvægt er að sótthreinsa hendur á meðan beðið er eftir kerrunni. Starfsmenn okkar munu leiðbeina viðskiptavinum við notkunina. Við hvetjum viðskiptavini samt sem áður að huga að almennum sóttvörnum við komu og brottför úr verslunum Bónus enda er þetta einungis viðbót við núverandi sóttvarnaraðgerðir," segir Guðmundur.