ÞETTA er vandamálið við „body positivity“ eða „bopo“ eins og við erum farin að kalla það. Mannréttindabarátta sem spratt undan jaðarsetningu og kúgun feitra líkama hefur verið útþynnt og markaðsvædd í þeim tilgangi að græða peninga. Hún nafna mín Tara Brekkan setti þennan „valdeflinga“-póst á fyrirtækjasíðu sína undir þeim formerkjum að við ættum að elska líkama okkar eins og þeir séu og eiga áhyggjulaust sumar frá óraunhæfum útlitsstandördum.
Nema það að þessi sama nafna mín viðheldur þessum sömu standördum og megrunarmenningunni á grófasta máta: Hún selur eitthvað megrunarkaffi undir nafninu \"Skinny Coffee Club\" en fullyrðingarnar sem fylgja markaðssetningu þess eru m.a. þessar:
„Læknisfræðilega sannað að fólk missi kíló“, „Sjáanlegur árangur á einungis viku“, „Afeitrar líkamann“, „Brennir fitu hratt og eykur efnaskiptin“, „Hjálpar við að viðhalda þyngd eftir þyngdartap“.
Meira að segja er gengið svo langt að halda því fram að kraftaverkakaffið lækni exem! Fullyrðingarnar eru svo í bland við fyrir/eftir-myndir og árangurssögur. Þetta er snákaolíusala upp á sitt fínasta!
Ég er búin að grannskoða vefsíðu Skinny Coffee Club og fb-síðu Törutrix. Ég sé enga tilraun til þess að sýna fram á neinar heimildir fyrir þessum ævintýralegu fullyrðingum. Engar! Ekki einu sinni þessar skitnu 12 manna \"rannsóknir\" til 2 mánaða sem megrunarfyrirtæki eru vön að kaupa sjálf til að hafa allavega eitthvað í höndunum í þeim tilgangi að blekkja viðskiptavini sína. Ég sendi erindi á Neytendastofu vegna þessa í janúar sl. og vona að eitthvað fari að koma úr því. Það er alveg skýrt að samkvæmt 4. mgr. 6. gr. laga nr. 57/2005 um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, þurfa fyrirtæki að geta færst sönnur á fullyrðingar sem fram koma í auglýsingum eða með öðrum hætti.
Ég gerði einnig tilraun til að fá svör frá Töru í janúar áður en ég sendi erindi til Neytendastofu sem hún virti að vettugi. Það er því ljóst að hún ætlar að halda sínum óheiðarlegu og blekkjandi viðskiptaháttum áfram og notfæra sér mannréttindabaráttu jaðarhóps sem hún tilheyrir ekki í gróðaskyni.
Nei, nei og aftur nei. Þú færð ekki að slengja fram hasstöggum eins og #bodypositivity eða #empowering á sama tíma og þú ert að ekki einungis að ýta undir megrunarmenningu heldur græða á henni líka! Þú færð ekki að græða á neikvæðri líkamsmynd, átröskunum, fitufordómum og sársauka annarra án þess að fá harða gagnrýni. Siðleysi kallar á viðbrögð.