Ríki Vatnajökuls hefur löngum verið rómað fyrir einstaka náttúrufegurð og dýrindis matargerð, enda er svæðið ríkt af hágæða hráefnum til matargerðar. Svo kemur líka súkkulaði til sögunnar úr súkkulaðigerð Omnom sem á sér enga líka.
En í sumar ætla veitingaaðilar Ríkis Vatnajökuls að bjóða matgæðingum og súkkulaðiunnendum í sannkallað súkkulaðiferðalag þar sem þeir bjóða upp á súkkulaðirétti úr hágæðasúkkulaði frá Omnom. Hér er um að ræða ferðalag þar sem súkkulaðiástin fær að njóta sín til fulls með öllum sínum brögðum og listrænu útfærslum sem enginn súkkulaði aðdáandi stenst.
Omnom-saltkaramellu-súkkulaðibitakaka með kaffinu á Café Vatnajökli. Kaffihúsið er á Fagurhólsmýri og er ævintýri í sjálfu sér.
Heimagerð súkkulaðikaka með Omnom-súkkulaði á Hótel Smyrlabjörgum. Smyrlabjörg er tilvalin staðsetning fyrir þá ferðalanga sem sækja í nálægð við Vatnajökul og geta fengið sér hádegismat fyrir eða eftir ferð á jökulinn.
Heimagerður Jöklaís á Brunnhóli sem fæst nú líka í Omnom-útgáfu. Brunnhóll er fjölskyldurekið gistihús sem leggur mikið upp úr persónulegri þjónustu.
Tartar úr Omnom-súkkulaði með Jöklaís á Ósnum á Hótel Höfn. Ósinn er hlýlegur staður sem býður upp á gott úrval rétta úr úrvalshráefnum.
Omnom-brúnka á Kaffi Horninu á Höfn. Kaffi Hornið var opnað í maí 1999. Það stendur í hjarta Hafnar í Hornafirði og býður upp á fyrsta flokks hráefni úr héraði.
Hafnarbúðin er rótgróinn og líflegur „diner“ við höfnina á Höfn sem býður upp á skemmtilegan og fjölbreyttan matseðil í anda amerísks „diners“ með íslensku ívafi. Hafnarbúðin býður upp á áhugaverðan chili con carne-rétt með Níkaragva-súkkulaðinu okkar og svo sítrónuystingsköku með lakkrís- og hindberjasúkkulaðinu okkar.
- Ottó veitingahús og verslun
Fallegur og vinalegur staður með metnaðarfullan matseðil. Þau ætla að vinna með súkkulaðið frá okkur í allt sumar og skapa alls konar skemmtilega rétti.
Glóðvolgur Omnom-súkkulaðiganache á Pakkhúsinu. Pakkhúsið leggur áherslu á hráefni úr héraði, bæði af landi og úr sjó. Humarinn kemur ferskur beint af bátunum sem landa við bryggjuna.
Ríki Vatnajökuls er stórbrotið svæði sem hefur að geyma magnaða íshella, töfrandi lón fyllt fljótandi ísjökum og jökultungur, sem sumar hverjar er auðvelt að nálgast. Við hvetjum ykkur til að heimsækja þetta magnaða svæði í sumar og njóta á þessum frábæru veitingastöðum hér að ofan.
*Kynning