Biðin er senn á enda fyrir Múmínálfa aðdáendur – Vetrarlínan væntanleg og mun fara um eins og snjóstormur

Vetrarlína Moomin í ár ber heitið Snow Blizzard eða Snjóstormur og er áframhald af sögunni Vetrarundur í Múmíndal (1957) eftir Tove Jansson. Þessi fallega vörulína inniheldur fallega krús, skál, sett með fjórum smákrúsum og tvær teskeiðar. Örfáir dagar eru að hún fari í sölu á Íslandi en salan hefst fimmtudaginn 22. Október næstkomandi. Biðin er því loks á enda fyrir Múmínálfa aðdáendur sem hafa beðið óþreyjufullir eftir nýjasta vetrarbollanum.

Moomin minimugs Snow blizzard.jpg

Myndefni vörulínunnar sýnir hvernig snjóstormur blæs af miklu afli á Múmínsnáðann og gerir hann alveg ringlaðan.

Vetrarlínan á sér skírskotun í sögunni Vetrarundur í Múmíndal þar sem segir frá því þegar vindhviður ganga yfir ísinn og láta tréin á ströndinni skjálfa. Hið mikla óveður hefur orðið til þess að ýmsar persónur leita skjóls í Múmíndal. Þau safnast saman í strandhúsinu og fyllast áhyggjum vegna Múmínsnáðans og krílisins Salóme sem eru bæði týnd í storminum.

Allt í einu er eins og stór hurð fjúki upp og allt verður dimmt. Múmínsnáðinn missir jafnvægið og rúllar eins og lítil hvít tunna. Að lokum verður hann þreyttur, snýr bakinu í átt að snjóstorminum og hættir að berjast gegn honum. Hlýr vindur flytur Múmínsnáðann mjúklega áfram í miðjum snjóstorminum og honum líður sem hann fljúgi. Krílið Salóme finnst í snjóskafli þar sem hinn háværi Hemúll bjargar henni.

Arabia_Muumit 2020_Winter season_6_2.jpg

Arabia_Muumit 2020_Winter season_7.jpg

Arabia_Muumit 2020_Winter season_4_2.jpg