Bára Halldórsdóttir, sem ætti að vera landsmönnum er hún uppljóstraði um samtöl þingmanna á Klaustur bar, segir líf sitt vera í óvissu um þessar mundir. Hún greinir sjálf frá þessu á Twitter.
„Ég er með heimaaðstoð frá Reykjavíkurborg 6 tíma á viku. Þyrfti meira. Aðstoðarkonan mín var að byrja í fæðingarorlofi. Vitað í 9 mán. Það er ekki búið að ráða manneskju í staðinn. Mitt líf er bara í pásu og óvissu. 75 manns bíða líka eftir að fá heimaaðstoð,“ skrifar Bára.
„Búin að leita líka að fjárhags eða mataraðstoð. Rauði krossinn er hættur með allt, hjálpar stofnun kirkjunnar vill helst styðja fjölskyldur með börn, mæðrastyrksnefnd svarar ekki og ekki náð í fjölskylduhjálp. Aðstaða fólks eins og mín versnar dag frá degi. Ég er við uppgjöf,“ bætir hún við.
Bára fær stuðnings á Twitter frá vinum og vandamönnum. „Þetta er ömurlegt,“ segir Ragga og „ég veit ekki hvað á ég að segja en mér finnst staðan fráleit,“ segir Halla.
Ég er með heimaaðstoð frá Reykjavíkurborg 6 tíma á viku. Þyrfti meira. Aðstoðarkonan mín var að byrja í fæðingarorlofi. Vitað í 9 mán. Það er ekki búið að ráða manneskju í staðinn. Mitt líf er bara í pásu og óvissu. 75 manns bíða líka eftir að fá heimaaðstoð. pic.twitter.com/TSkiPQRkAm
— Bára Halldórsdóttir #blacklivesmatter (@bee_how) November 29, 2022