Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn almannavarna hringdi í móður sína í mars 2020 og lét hana vita sérstaklega að hún væri með flensu en ekki Covid-19.
Þetta kom fram í Stormi, heimildarþáttaröð um heimsfaraldur Covid-19 á Íslandi. Þar er þríeykinu svokallaða fylgt eftir, þeim Víði, Þórólfi Guðnasyni og Ölmu Möller auk þess sem sögur eru sagðar af Íslendingum sem faraldurinn hafði áhrif á.
Í fyrsta þættinum er þríeykinu fylgt eftir á einum af fyrstu fundum þeirra í samhæfingarstöð almannavarna í Skógarhlíð. Þar spyr Víðir Þórólf út í sýnatöku móður sinnar.
„Gastu tékkað á þessari kennitölu sem ég sendi þér?“ spyr Víðir Þórólf. „Neikvætt,“ svarar Þórólfur um hæl.
„Neikvætt? Gott,“ svarar Víðir. „Þá ætla ég að hringja í múttu,“ segir yfirlögregluþjónninn og má sjá hann tala í símann við móður sína í næsta skoti.
„Heyrðu þetta er neikvætt, þú ert ekki með kóróna, bara með flensu, já.“