Þegar það kemur að vikulegri hreingerningu, er auðvelt að gleyma örbylgjuofninum. Það sem er yfirleitt auðsjáanlegt og er á yfirborðinu fær iðulega reglulega hreingerningu, en þau óhreinindi sem við sjáum sjaldan og horfum ekki á daglega, eru utan sjónarsviðs okkar, bakvið luktar dyr verða oft á tíðum eftir.
Örbylgjuofninn þinn er hugsanlega eitt af mest notuðu tækjum í eldhúsinu þínu. Ef þú hreinsar hann ekki reglulega, gæti ofninn allur verið þakinn að innanverðu af elduðum mat, fitu og hálfgerðri ólykt. Til allrar hamingju, þá er fljótlegt og auðvelt að þrífa örbylgjuofninn þinn á náttúrulegan hátt með sítrónu, vatni og tusku. Ef að óhreindindin eru erfið viðfangs, þá getur þú einnig notað sterkari náttúruleg hreinsiefni, eins og edik eða matarsóda.
Hvort sem það er þörf fyrir allsherjar hreinsun, að losna við vonda lykt eða bara fljótlega hreingerningu, þá er þetta aðferðin.
Fyrir það fyrsta, taktu ávallt örbylgjuofnin úr sambandi við rafmagn áður en þú þrífur.
Sítróna eða edik
Til að fjarlægja lykt og losna við matarleifar, kreistu hálfa sítrónu eða nokkrar matskeiðar af edik í skál af köldu vatni og tryggðu að skálin sé ekki meira en hálf full. Hitaðu vatnið í örbylgjuofninum þangað til að vatnið nær suðu í um það bil 3 til 5 mínútur og glugginn á örbylgjuofninum verður þakinn gufu. Edik og sítrónur eru umhverfisvæn hreinsiefni og því frábær aðferð til að þrífa á náttúrulegan hátt.
Leyfðu ofninum að kólna
Látið ofninn kólna í um það bil 5 til 10 mínútur áður en hurðin á ofninum er opnuð, látið gufuna vinna á óhreinindunum. Varist að ofninn og skálin geta verið heit. Þurrkið örbylgjuofninn með hreinni tusku. Fyrst skaltu taka snúningsdiskinn úr ofninum og þurrka hann með tusku. Setjið snúningsdiskinn til hliðar og þurrkið gufuna og rakann með óhreinindunum. Ekki gleyma að þurrka hurðina að innanverðu. Matarleifar og fita inni í örbylgjuofninum ættu að hverfa auðveldlega. Ef þú vilt ekki nota tusku, getur þú notað rakan svamp. Ekki gleyma að hreinsa og þurrka falsið og jafnframt takka og stjórnborð ef gufan lekur út.
Notið matarsóda á erfiða bletti
Notaðu matarsóda til að fjarlægja sérstaklega erfiða bletti. Sáldrið matarsóda á blettinn og látið liggja 1-2 mínútur. Dýfið síðan klútnum í sítrónuvatnið og nuddið blettin kröftuglega. Matarsódinn á að vinna vel á erfiðum blettum og sítrónuvatnið mun hjálpa til við að leysa upp óhreinindin. Vertu viss um að hreinsa upp allan matarsódann áður en ofninn er notaður aftur.