Umhverfisstofnun og Embætti landlæknis að höfðu samráði við framleiðendur sótthreinsivara beina þeim tilmælum til almennings, fyrirtækja og stofnana að henda ekki handpumpum af handsprittbrúsum, sápum eða öðrum sótthreinsivörum. Beinir stofnunin þeim tilmælum til almennings að endurnýta þær þar sem skortur er á slíkum pumpum í heiminum. Takist ekki að upplýsa almenning sé fyrirsjáanlegt að framleiðendur geti einungis framleitt handspritt í áfyllingarbrúsum án pumpu. Í tilkynningu frá Umhverfisstofnun segir:
„Mikilvægt er að hafa í huga að ekki er um að ræða fyrirsjáanlegan skort á hráefnum til framleiðslu á handspritti eða sóttvarnarefnum og þar af leiðandi er óþarfi að hamstra handspritt eða sótthreinsivörur. Skorturinn á eingöngu við um handpumpurnar sjálfar.“
Íslendingar eru hvattir til að fylgja áfram leiðbeiningum sóttvarnarlæknis og Embætti landlæknis um að þvo hendur með sápu og vatni en nota handspritt ef hendur eru ekki sýnilega óhreinar eða eftir meðhöndlun peninga og greiðslukorta.
Þá beinir Landlæknir og Umhverfisstofnun þeim tilmælum til fólks að reyna ekki að búa til eigið spritt. Slíkt getur reynst hættulegt.