Afdalamenn, blekkingameistarar og sannleikurinn

Fyrir undirrituðum hefur það verið með ólíkindum, hvernig bullið og ruglið um ESB-orkupakkana hefur flætt yfir bakkana, án efnisraka, góðra útskýringa eða skiljanlegs málflutnings.

Það hefur verið talin fín regla, að hugsa og kynna sér málin fyrst og tjá sig svo á eftir. Hér, hins vegar, láta menn í stórum stíl - líka virðingarverðir menn og að margra mati góðir og klárir, líka merkir ritstjórar og fyrrverandi ráðherrar, svo að ekki sé nú talað um þá, sem hvorttveggja eru - móðinn mása og spara ekki stóru orðin. Af þekkingarskorti eða í blekkingarleik. Hástigið næst, þegar hvorttveggja fer saman.

Þessi mannskapur heldur því fram, að Íslendingar búi yfir gífurlegri raforku, langt umfram aðra menn og þjóðir, og, að vondir útlendingar og ESB-ræningjar ásælist þennan mikla auð okkar. Erum við kannske orkuguðir? Við erum auðvitað sterkastir allra, en erum við líka orkumestir allra? Hvað segir kvenfólkið?

Stundum tekst að koma sannleikanum á framfæri, og verður hér að neðan reynt, að koma kjarna hans að - þó að þetta verði kannske bara eins og dropi í gnauðandi ósannindahafið.

„Orkan okkar“, þar sem nokkrir þeirra, sem fyrirsögnin er helguð, eru samankomnir, segir m.a. þetta í nýlegri heilsíðuauglýsingu í blaðinu:

„VIÐ ERUM MESTA RAFORKUÞJÓÐ HEIMS“.

Þetta myndi auðvitað gera íslenzka raforku merkilega, og væri jafnvel hægt að tala um sérstök auðæfi, ef þetta væri nú bara raunverulegt og satt, en ekki blekking. Hér gildir auðvitað engin á-mann-regla.

ESB framleiðir (2017) 2,895,917.693 gigawatt-stundir af raforku á ári. Og, hvað framleiðir Ísland? 18,061.163 gigawatt-stundir. Íslenzk raforkuframleiðsla er semsagt aðeins 0,6% af raforku- framleiðslu ESB. Datt engum í hug að skoða þetta?

Íslenzk raforka er þannig rétt nasarfylli kattar í evrópsku heildar samhengi; það ásælist hana enginn og það hefur enginn minnsta áhuga á henni. Voru ekki líka fréttir um það nýlega, að okkur kynni sjálf að skorta orku, til eigin nota, innan 3ja ára?

Næstu meiriháttar rafstrengir verða væntanlega lagðir frá Afríku - þar sem aðgangur er að óendanlegri sólarorku - til Evrópu, verði Evrópa þá ekki orðin sjálfri sér næg með sólar-, vind- og sjávarfallaorku.

Það er ekki öll vitleysan eins.