11 mánaða barn greindist með mislinga

Þann 2. mars síðastliðinn greindist tæplega 11 mánaða gamalt barn með mislinga á Íslandi. Barnið, sem var óbólusett, var í sama flugi og einstaklingur sem greindist með smitandi mislinga þann 15. febrúar síðastliðinn. Frá þessu er greint á vef Landlæknis.

Barnið var lagt inn á Barnaspítala Hringsins þann 1. mars síðastliðinn og heilsast vel eftir atvikum. Líkur á frekara smiti frá barninu er ólíklegt en einstaklingar í nánasta umhverfi barnsins eru bólusettir gegn mislingum. Mislingar eru með mest smitandi sjúkdómum sem þekkjast. Engin meðferð er til við sjúkdómnum og eina fyrirbyggjandi meðferðin felst í bólusetningu sem veitir meira en 95 prósent vörn.

Að gefnu tilefni er rétt að benda á að börn eru ekki bólusett fyrir mislingum hér á landi fyrr en um 18 mánaða aldur. Það má samt bólusetja þau fyrr ef til stendur að ferðast til landa þar sem mislingar hafa verið að greinast. Ef barn hins vegar er bólusett á fyrsta aldursári þá þarf að endurbólusetja við 18 mánaða aldur. Í frétt Landlæknis segir að bólusetning gegn mislingum sé við 18 mánaða og 12 ára aldur. Hægt sé að bólusetja börn frá 6 mánaða aldri en að vörn bólusetningarinnar sé óviss á aldrinum 6−12 mánaða. Litlar líkur séu á vernd ef bólusett er fyrir 6 mánaða aldur.

Í tilkynningu Landlæknis kemur einnig fram að sem stendur sé ekki vitað um fleiri smitaða einstaklinga en mögulega megi búast við smiti fram til 7. mars, þegar 3 vikur eru liðnar frá því að einstaklingurinn með mislinga sem greint var frá um miðjan febrúar var á ferðalagi bæði erlendis og hér innanlands.