Oftar en ekki má koma í veg fyrir hin ýmsu vandamál er tengjast húðinni með breyttu mataræði. Það að borða hollan mat hefur ekki aðeins góð áhrif á mittislínuna, ónæmiskerfið, líkamlega og andlega líðan heldur getur það skipt sköpum fyrir heilbrigða húð, hár og neglur.
„Mataræðið hefur bein áhrif á daglega líðan og hefur gríðarlega mikil áhrif á það hvernig maður eldist.“ Þetta segir næringarfræðingurinn Joshua Zeichner í grein sem birtist á Times.
Hér að neðan er listi yfir 10 fæðutegundir sem hann tók saman og fullyrðir að hafi gríðarlega góð áhrif á líkamann:
Kaffi: Þeir sem drekka kaffi daglega eru í góðum málum. Hágæða, nýmalað kaffi inniheldur efni sem verja húðina gegn húðkrabbameini. Í niðurstöðum nýlegrar rannsóknar sem birtist í the Journal of the National Cancer Institute kom fram að því meira kaffi sem fólk drekkur því minni líkur eru á því að það fái húðkrabbamein.
Vatnsmelóna: Þessi rauði, vatnsmikli og dísæti ávöxtur er stútfullur af andoxunarefnum sem meðal annars hjálpar líkamanum að berjast á móti skemmdum í húðinni af völdum útfjólublárra geisla sólarinnar.
Granatepli: Fræin í ávextinum eru stútfull af andoxunarefnum og C vítamínum sem koma í veg fyrir fínar línur og þurrk í húðinni. Niðurstöður rannsóknar sem birtist í the American Journal of Clinical Nutrition sýndu fram á að þeir sem neyta fæðutegunda sem innihalda mikið C vítamín eru ólíklegri til að fá þurra húð og hrukkur þegar komið er á miðjan aldur.
Bláber: Það er ekki að ástæðulausu að bláber komast alltaf inn á lista yfir ofurfæðu. Þau eru stútfull af C og E vítamíni sem hafa gríðarlega góð áhrif á húðina. Meðal annars jafna út húðlitinn og hafa góð áhrif á skemmdir í húðinni að völdum útfjólublárra geisla sólarinnar.
Humar: Humar er stútfullur af sinki og andoxunarefnum sem hjálpa húðinni að koma jafnvægi á húðina. Til dæmis er fólki sem er með bólur í húðinni ráðlagt að borða humar reglulega. Sinkið gerir að verkumað húðfrumurnar skipta sér oftar. Þar af leiðandi er sink mikið notað í lyf gegn bólum í húð. Þetta segir húðsjúkdómalæknirinn Whitney Bowe sem hefur mikið rannsakað áhrif sinks á húðina fyrir hönd Icahn School of Medicine í Mount Sinai: \"Það hefur löngum sýnt sig að þeir sem eru með slæma húð eru með mun lægra magn af sinki í blóðinu heldur en þeir sem eru með húð í góðu jafnvægi.“
Þetta segir húðsjúkdómalæknirinn Whitney Bowe sem hefur mikið rannsakað áhrif sinks á húðina fyrir hönd Icahn School of Medicine í Mount Sinai.
Grænkál: Grænt salat og grænmeti eru rík af K vítamíni og járni. Þeir sem eru lágir í járni eru oftar en ekki með föla húð sem gerir að verkum að hún virkar glær. Því er um að gera að bæta grænu grænmeti við mataræðið ef þú gerir það ekki nú þegar.
Egg: Neglurnar á þér eru búnar til úr próteini. Þeir sem innbyrða ekki nógu mikið prótein daglega eru því oftar en ekki með mýkri og brothættari neglur. Eggin hafa gríðarlega góð áhrif á neglur þar sem þau eru stútfull af próteini, B vítamínum og amínó sýrum
Valhnetur: Omega 3 fitusýrur, til inntöku, hafa góð áhrif á hárið þar sem náttúrulegar olíurnar viðhalda fituframleiðslu sem nærir það. Að auki eru valnetur mjög ríkar af kopar sem viðhalda háralitnum. Það gæti verið gott að vita fyrir þau okkar sem hræðumst gráu hárin. Ráðlagður dagskammtur af valhnetum er ¼ bolli.
Avocado: Ávöxturinn er stúfullur af góðum fitusýrum á borð við Omega 9 sem viðheldur heilbrigðri fituframleiðslu húðarinnar og kemur í veg fyrir þurrk. Ef þú borðar rétt magn af Avocado þá ætti þurrkur í húð og leiðindi er tilheyra slíkum kvilla að vera úr sögunni áður en langt um líður.
Kantalópu melóna: Þessi sæta melóna inniheldur A vítamín sem talið er geta hjálpað húðfrumum að fjölga sér hraðar. Að því sögðu hjálpar hún svitaholum að haldast hreinar og húðinni frá því að flagna.